Bankarnir hækkuðu launin mest af öllum atvinnugreinum Hafsteinn Hauksson skrifar 14. júlí 2011 13:30
Laun og launatengd gjöld meðalstarfsmanns í stóru viðskiptabönkunum eru um sjöhundruð þúsund krónur á mánuði og jukust meira en í nokkurri annarri atvinnugrein á síðasta ári. Bankasýslan vill taka til í rekstri bankanna. Rekstrarkostnaður stóru bankanna þriggja jókst verulega á síðasta ári, eða um 15 prósent. Stór hluti þessa stökks skýrist af hækkandi launakostnaði innan bankakerfisins. Hæstur var launakostnaðurinn hjá Íslandsbanka, en þar greiddi bankinn að meðaltali á áttunda hundrað þúsund króna fyrir hvern starfsmann. Þá hafði kostnaðurinn aukist hjá öllum bönkunum um 10 til 15 prósent frá árinu áður. Samtals nemur aukning launakostnaðar þeirra um 3,2 milljörðum. Í ársskýrslu Bankasýslu ríkisins, sem fer með hlut hins opinbera í bönkunum, segir að hluta hækkunarinnar megi rekja til hækkunar tryggingagjalds. Þrátt fyrir það er ljóst að launakostnaðurinn jókst ívið meira í bankakerfinu en í öðrum geirum, þar sem hækkunin nam 5 til 10 prósentum á sama tímabili samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í skýrslu Bankasýslunnar kemur skýrt fram að hár rekstrarkostnaður bankakerfisins kalli á aukna hagræðingu. Þar er ekki aðeins beint sjónum að launakostnaðinum, heldur er einnig bent á að Ísland eigi norðurlandamet í því hversu fáir viðskiptavinir eru um hvert bankaútibú. Auk hagræðingar innan fyrirtækjanna stingur bankasýslan upp á sameiningu fjármálafyrirtækja, en ekkert fjármálafyrirtæki á landinu er sagt ná hagkvæmustu stærð.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira