Uggur vegna sameiningar Byrs og Íslandsbanka Hafsteinn Hauksson skrifar 14. júlí 2011 12:30
Talsmaður bankastarfsmanna segir að uggur sé í félagsmönnum sínum vegna sameiningar Íslandsbanka og Byrs, og telur að það hljóti að koma til uppsagna. Bankinn segir of snemmt að segja til um slíkt. Í nýrri skýrslu Bankasýslu ríkisins er lögð áhersla á að rekstrarkostnaður bankakerfisins sé of hár. Þar er kallað eftir aukinni hagræðingu í bankakerfinu, bæði innan hvers banka, en einnig með sameiningu fjármálafyrirtækja. Fréttir af slíkum samruna bárust í gær þegar tilkynnt var um að náðst hefði samkomulag um yfirtöku Íslandsbanka á Byr. Að fengnu samþykki Fjármála- og Samkeppniseftirlitsins er ráðgert að sameinaður banki starfi undir merkjum Íslandsbanka. Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir ljóst að haldið verði áfram á hagræðingarbraut, en um 1700 félagsmenn hans hafa misst vinnuna undanfarin tvö ár. „Það er ljóst að þegar fyrirtæki eins og Íslandsbanki og Byr sameinast, þá fækkar starfsmönnum," segir Friðbert. Hann segir að vel hafi verið staðið að fækkun starfsfólks við sameiningu SP-Kef og Landsbankans, til dæmis með því að semja við starfsmenn nærri eftirlaunaaldri, og treystir að hið sama verði gert í Íslandsbanka ef til þess komi. Upplýsingafulltrúi Íslandsbanka segir þó of snemmt að segja nokkuð til um uppsagnir eða lokanir útibúa fyrr en samþykki eftirlitsaðila liggur fyrir. Verið sé að hefja undirbúning á útfærslu á því hvernig staðið verði að sameiningunni, en reynt verði að taka mið af hagsmunum allra viðkomandi, þar á meðal starfsmanna. Þrátt fyrir það er uggur í bankastarfsmönnum vegna sameiningaráforma, ekki síst því bankastarfsmenn hafa margir hverjir verið lengi í starfi. „Meðalstarfsaldur er rúm 14 ár, sem er sá lengsti sem þekkist í fyrirtækjum utan ríkisgeirans. Menn eru búnir að starfa mjög lengi og auðvitað eru þeir uggandi. Þetta er líka búið að hanga yfir þeim í langan tíma, og valda miklum óróa," segir Friðbert.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira