Viðskipti innlent

Ríkið mun aðeins einkavæða hluta af eign sinni í bönkum

Ríkið mun hugsanlega aðeins einkavæða hluta af eign sinni í bönkunum, að sögn forstjóra Bankasýslu ríkisins. Hann útilokar ekki að salan taki lengri tíma en gert er ráð fyrir í lögum, en vinna er nú þegar hafin við gerð söluáætlunar.

Það er Bankasýsla ríkisins sem sér um að undirbúa sölu á eignarhlut hins opinbera í fjármálafyrirtækjum og gera tillögu um sölu þeirra þegar það er talið tímabært, en fjármálaráðherra tekur endanlega ákvörðun þar um. Bankasýslan vinnur nú að söluáætlun, sem verður grundvallarskjal við einkavæðingu bankanna þegar að henni kemur.

Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslunnar, segir ekki seinna vænna að hefja undirbúning og umræðu um söluferlið, þó ekki liggi fyrir hvenær það hefst. Samkvæmt lögum á Bankasýslan að ljúka störfum fyrir árslok 2014, og því ætti stofnunin ekki að hafa meira en þrjú og hálft ár til stefnu.

„Auðvitað er þetta ekkert órjúfanlegt," segir Elín þó um tímarammann. „Ef almennileg skilyrði eru ekki fyrir hendi til að selja á þessum tíma, þá væri sjálfsagt hægt að fresta því eitthvað. En við teljum æskilegt að hefja undirbúninginn og vanda vinnuna vel, og vonandi gengur þetta hratt og örugglega fyrir sig."

Stefnt verður að dreifðri eignaraðild í söluferlinu, en meðal þess sem einnig er til skoðunar er hvort ríkið haldi hlut sínum í einhverum bankanna eftir.

„Það er vel hugsanlegt, og það er eitthvað sem við viljum fjalla um í söluáætluninni og varpa fram til frekari umræðu - hvort það eigi að horfa til fordæma sem við höfum í Noregi og Svíþjóð þar sem ríkið hélt misstórum eignarhlut eftir í stærstu bönkunum eftir bankakreppuna þar á 10. áratugnum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×