Krafa um að bresk skýrsla um íslensku bankanna verði opinber 14. mars 2011 10:01
Tony Shearer fyrrum bankastjóri Singer & Friedlander bankans í London krefst þess að gerð verði opinber skýrsla sem breska fjármálaeftirlitið FSA gerði um fall Kaupþing og Landsbankans. Þetta kemur fram í bréfi Shearer til blaðsins Telegraph. Í bréfinu gagnrýnir Shearer FSA og aðrar breskar eftirlitsstofnanir harðlega og segir að þær hafi ekkert lært af íslenska bankahruninu. Það sé orðið tímabært að birta fyrrgreinda skýrslu svo að stjórnvöld geti gert sér grein fyrir því til hvaða ráðstafana beri að grípa til að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig. Shearer segir að bresk stjórnvöld hafi ekki sýnt neinn áhuga á að taka á þeim vandamálum sem hrun banka á borð við Royal Bank of Scotland og Kaupþíngs hafi valdið í Bretlandi. Menn hafi ekkert lært þar sem engin rannsókn hafi farið fram. Shearer gagnrýndi kaup Kaupþings á Singer & Friedlander harðlega árið 2005 og sagði þá að Kaupþingsmenn væri ekki hæfir til að reka breska bankann. Þetta afgreiddu Kaupþingsmenn með því að segja að Shearer væri hörundsár yfir því að hafa ekki haldið bankastjórastöðu sinni.
Mest lesið Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira