Árni Páll: Enginn ber í raun ábyrgð á starfi skilanefndanna Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 14. mars 2011 19:30
Slitastjórn og skilanefnd Glitnis voru með að meðaltali um 6 milljónir í mánaðarlaun á síðasta ári samkvæmt ársreikningi Glitnis. Viðskiptaráðherra segir frumvarp um eftirlit með skilastjórn og skilanefnd sé í undirbúningi. Samkvæmt uppgjöri Glitnis sem kynnt var í gær fyrir árið 2010 fengu skilanefnd og slitastjórn Glitnis greiddar 348 milljónir króna í árslaun. Launin skiptast niður þrennt í skilanefndarmenn Glitnis og tvennt í slitastjórn. Meðallaun þessa fólks eru því 70 milljónir króna á ári eða tæpar 6 milljónir á mánuði. Til samanburðar er forsætisráðherra með rúma milljón á mánuði. Þar að auki ákvað skilanefndin og slitastjórnin í upphafi þessa árs að hækka verð fyrir hvern útseldann tíma þannig að laun skilanefndarmanna eru nú enn hærri en þessar tölur frá árinu 2010 gefa til kynna. Efnahags- og viðskiptaráðherra, Árni Páll Árnason, segir þessar tölur mjög háar. Tryggja verði að skilanefndir heyri í framtíðinni undir einhverskonar eftirlit. „það er í reynd enginn sem ber ábyrgð á rekstri þeirra og getur haft með hana að gera. Enginn hefur gott af því að starfa ábyrgðarlaust," segir Árni Páll. Hann segir nauðsynlegt að vinda ofan af því formi sem skilanefndirnar starfa við í dag. Ráðuneytið sé að vinna frumvarp sem eigi að koma skilanefndum undir eftirlit kröfuhafa, skilgreina starfsvettvang þeirra og greiða fyrir að þær verði leystar upp. „Það er engum til góðs að búa til eilífðarvélar sem skapa tækifæri á að menn geti skammtað sér laun og aðstöðu tímunum og árunum saman," segir Árni Páll.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira