Staða Glitnis vænkast Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. mars 2011 11:27
Verðmat eigna Glitnis banka hækkaði úr 808 milljörðum króna í upphafi síðasta árs í 814 milljarða í lok ársins, eða um 1%. Verðmat eigna Glitnis í evrum hækkaði aftur á móti um 18%, eða úr 4.493 milljónir evra í 5.295 milljónir evra. Styrking krónunnar á árinu 2010 skýrir þessar mismunandi niðurstöður á mati eigna eftir myntum. Verðmat eigna í íslenskum krónum talið hækkaði um 88 milljarða á árinu 2010, en neikvæð áhrif gengis og aðrar breytingar unnu gegn hækkun á eignamati og nam sú lækkun alls um 82 milljörðum króna, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu.Rekstrarkostnaður 4,6 milljarðar Heildarrekstrarkostnaður Glitnis banka á árinu 2010 var 4.570 milljónir króna sem er 0,24% af nafnvirði heildareigna í árslok, sem námu fyrir niðurfærslu eigna og skuldajöfnun um 1.874 milljörðum króna. Stærstur hluti rekstrarkostnaðar er til kominn vegna aðkeyptrar sérfræðiráðgjafar sem nam 3.074 milljónum króna. Þar af nemur kostnaður vegna erlendrar sérfræðiráðgjafar 2.484 milljónum króna. Handbært fé Glitnis banka í árslok 2010 nam 259 milljörðum króna og hækkaði um 128 milljarða á árinu, þrátt fyrir 18 milljarða króna neikvæð áhrif vegna styrkingar á gengi íslensku krónunnar.Ekki búið að taka afstöðu til krafna Slitastjórn Glitnis hefur ekki lokið við að taka afstöðu til allra krafna sem lýst var fyrir kröfulýsingafrest sem lauk þann 26. nóvember 2009, en í desember 2010 hafði slitastjórn kynnt afstöðu til um 75% krafna. Næsti opni kröfuhafafundur þar sem afstaða slitastjórnar verður kynnt verður haldinn þann 14. apríl 2011.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira