Spáir því að verðbólgan lækki í 1,5% í febrúar 15. febrúar 2011 15:12
Greiningardeild Arion banka spáir 0,8% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í febrúar. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 1,5% samanborið við 1,8% í janúar. Ársverðbólgan án áhrifa skattahækkana ríkisins verður hins vegar 1,3%. Útsölur ganga nú tilbaka og koma áhrifin fram í febrúar og mars. „Bráðabirgðaspá okkar gerir ennfremur ráð fyrir að verbólgan mælist 0,5% í mars, 0,4% í apríl og 0,2% í apríl," segir í Markaðspunktum greiningarinnar þar sem fjallað er um verðbólguspánna. Í Markaðspunktunum segir að helstu þættir í febrúarspánni séu eftirfarandi: Útsölur ganga tilbaka. Sterk útsöluáhrif mældust í janúar (áhrif til lækkunar 0,9%). Greiningardeild gerir ráð fyrir að útsölur gangi að hluta tilbaka í febrúar (og restin kemur fram í mars). Heildaráhrif +0,45%. Eldsneytisverð hækkar. Þrátt fyrir að bensíngjaldið hafi hækkað um áramótin þá koma áhrifin ekki fram fyrr en fyrst nú þar sem eldsneytisstöðvar ganga á birgðir sem fluttar voru inn eftir áramótin. Heildaráhrif +0,13%. Flugfargjöld hækka. Sveiflukóngur vísitölunnar heldur sínu striki í febrúar og lækkunin í janúar gengur tilbaka í febrúar. Heildaráhrif +0,14%. Matvörur hækka. Heimsmarkaðsverð á hrávörum hafa verið að hækka á síðustu mánuðum og mátti sjá áhrifin skila sér í verðlagið í síðustu mælingu Hagstofunnar. Þessu til viðbótar hefur krónan verið að veikjast. Samkvæmt heimildum frá birgjum þá eru að vænta frekari verðhækkana á næstunni. Gerum við ráð fyrir að heildaráhrif verði +0,10% í febrúar. Lækkun húsnæðisliðar. Húsnæðisliðurinn (reiknuð leiga) lækkaði verulega í janúarmælingu Hagstofunnar. Hagstofan tekur þriggja mánaða hlaupandi meðaltal af mánaðarhækkunum og þessi lækkun í janúar mun því hafa áhrif í febrúar og mars mælingu Hagstofunnar. Heildaráhrif -0,10%.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira