Áherslubreytingar OR kynntar á opnum ársfundi 22. júní 2011 09:32 Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, mun gera grein fyrir þeim aðgerðum í rekstri og skipulagi OR sem ráðist hefur verið í og eru í undirbúningi.
Orkuveita Reykjavíkur heldur í fyrsta sinn opinn ársfund, og fer hann fram á morgun milli klukkan 14.00 og 16.00. Ástæða þess að fundurinn er öllum opinn er til að auka gegnsæi í starfseminni og stuðla að upplýstri umræðu um málefni þess. Þess er þó krafist að fólk skrái mætingu á vef Orkuveitunnar. Á fundinum verða kynntar áherslubreytingar í rekstri, skipulagi og þjónustu OR, drög að nýrri eigendastefnu fyrir fyrirtækið og staða úttektar eigenda á tildrögum fjárhagsvanda fyrirtækisins. Ársskýrslu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2010 og Umhverfisskýrslu 2010 verður dreift á fundinum á rafrænu formi og verða þær aðgengilegar á vef OR eftir fund. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur.DAGSKRÁ FUNDARINS:1. Ávarp Jóns Gnarr, borgarstjóraÍ ávarpi sínu mun borgarstjóri m.a. gera grein fyrir stöðu óháðrar úttektar á stöðu og rekstri Orkuveitu Reykjavíkur, sem hefur það að markmiði að draga fram með skýrum hætti orsakir þeirrar fjárhagslegu stöðu sem fyrirtækið hefur ratað í.2. Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur og horfur, Bjarni Bjarnason, forstjóriBjarni, sem tók við forstjórastarfi hjá OR 1. mars síðastliðinn, OR og eigendur fyrirtækisins gerðu með sér samkomulag í marslok um aðgerðaáætlun vegna fárhagsvanda OR sem miðaði m.a. að því að fyrirtækið þyrfti ekki að leita á erlendan fjármagnsmarkað til að tryggja greiðsluhæfi þess.3. Þjónustufyrirtækið OR, Sigrún Viktorsdóttir, umsjónarmaður þjónustuOrkuveita Reykjavíkur þjónar um ¾ hlutum landsmanna. Margir eiga því mikið undir því að þjónustan sé traust og að þjónustulund einkenni viðmót fyrirtækisins. Sigrún mun fjalla um aðgerðir hjá OR í þessu skyni.4. Drög að eigendastefnu OR, Dagur B. Eggertsson, formaður eigendanefndarOrkuveita Reykjavíkur er í eigu þriggja sveitarfélaga og hafa fulltrúar þeirra unnið að því undanfarna mánuði að setja fyrirtækinu eigendastefnu. Það er nokkuð frumkvöðlaverk því eina slíka skjalið sem til er hjá opinberum aðilum hér á landi er eigendastefna ríkisins gagnvart fjármálafyrirtækjum. Nú liggja drög að eigendastefnunni fyrir og gefst öllum kostur á að koma á framfæri athugasemdum við hana til 15. ágúst næstkomandi.
Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira