Fimmtíu og sjö sagt upp hjá Arion 12. september 2011 13:54 Myndir/Pjetur
Fimmtíu og sjö starfsmönnum Arion banka var í dag sagt upp störfum. Í tilkynningu frá bankanum segir að þrjátíu og átta þeirra séu úr höfuðstöðvum bankans en nítján á öðrum starfsstöðvum. Vinnumálastofnun hefur verið tilkynnt um uppsagnirnar en bankinn segir þær vera lið í hagræðingaferli sem staðið hafi yfir allt frá stofnun bankans eftir hrun. Forsvarsmenn bankans segjast harma aðgerðirnar en að ljóst megi vera að rekstur íslenska fjármálakerfisins sé of kostnaðarsamur. Það eigi einnig við um Arion banka. „Það er erfitt skref að þurfa að grípa til uppsagna en nauðsynlegt til að bregðast við aðstæðum. Ekki eru fyrirhugaðar frekari aðgerðir af þessu tagi," segir ennfremur í tilkynningunni. „Arion banki stendur frammi fyrir ákveðnum kaflaskilum í starfsemi sinni. Annars vegar líður að því að vinnu við úrlausnarmál ljúki. Hins vegar hefur dregið hratt úr vinnu tengdri endurskipulagningu í ytra umhverfi sem og við rannsókn og uppgjör af ýmsu tagi er tengjast fortíðinni." „Almennt má ljóst vera að rekstur íslenska fjármálakerfisins er of kostnaðarsamur. Fjöldi starfsfólks hjá fjármálafyrirtækjum hér á landi er of mikill miðað við umfang kerfisins. Sú staðreynd á einnig við um Arion banka. Að auki eru ný verkefni, s.s. eftirspurn eftir nýjum lánum og fjárfestingar í lægð sem stendur," segir ennfremur. Þá er því bætt við að þrátt fyrir að afkoma bankans hafi verið viðunandi síðastliðin misseri sé stór hluti þess hagnaðar tilkominn vegna endurmats á lánabók á fyrirtækjasviði bankans. „Arðsemi af reglulegri starfssemi er ekki ásættanleg til lengri tíma litið. Arion banki hefur styrkt stöðu sína á markaði frá stofnun bankans en engu að síður eru aðgerðirnar nú nauðsynlegar til að treysta stöðu bankans og samkeppnishæfni til framtíðar," segir að lokum um leið og þess er getið að sjórnendum þyki þungbært að hafa þurft að grípa til aðgerðanna.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira