Gæti komið niður á fjárfestingum sjóða 26. maí 2011 05:00 Viðskiptaráð vill ekki sjá nýjan skatt á lífeyrissjóði. Fréttablaðið/gva
Áætlað er að nýr eignaskattur á lífeyrissjóði sem ríkisstjórnin boðar í svokölluðum skattabandormi í tengslum við nýgerða kjarasamninga skili tæpum tveimur milljörðum króna. Skatturinn nemur 0,0972 prósentum. Viðskiptaráð Íslands lýsir í umsögn sinni til Efnahags- og skattanefndar um skattabandorminn almennt yfir ánægju með að með honum sé undið ofan af mistökum sem gerð voru við breytingar á skattkerfinu eftir bankahrunið. Í umsögn Viðskiptaráðs er hins vegar bent á að í 9. grein skattabandormsins sem fjallar um skattlagningu lífeyrisssjóða sé um grófa tvísköttun að ræða. Þetta sé nýr skattur sem ekki sé hægt að finna rökstuðning fyrir né sé hann í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við gerð kjarasamninga. Þar er meðal annars kveðið á um að greiða eigi götu lífeyrissjóða til frekari fjárfestinga. Þá sé skatturinn í mótsögn við þau markmið að standa vörð um getu sjóðanna til útgreiðslu úr þeim. Viðskiptaráð leggur því til í umsögn sinni að skatturinn verði felldur út úr frumvarpinu. - jab
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Sjá meira