Íslenska leiðin var bara ódýrari en sú írska 4. ágúst 2011 11:00
Ekkert land eyddi jafnmiklu í bankakerfið og Ísland, að frátöldu Írlandi, á árunum 2007 til 2009 vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu OECD um Ísland, en fjallað er um málið í nýjasta tölublaði Vísbendingar, vikurits um viðskipti og efnahagsmál. Fjármálakreppan á árunum 2007 til 2009 kostaði írska ríkið langmest, eða sem nemur 49 prósentum af landsframleiðslu. Kostnaður Íslendinga samkvæmt OECD var hins vegar 20,3 prósent af landsframleiðslu. Sú tala er þó nær örugglega of lág því hið opinbera hefur lagt meiri peninga inn í bankakerfið frá árinu 2009, svo sem til Íbúðalánasjóðs. Þau ríki sem koma næst á eftir Íslandi eru Holland, Bretland og Lúxemborg með kostnað upp á 12,9 prósent, 8,7 prósent og 7,7 prósent af landsframleiðslu. Kostnaður annarra ríkja var undir fimm prósentum af landsframleiðslu. Í Vísbendingu er þeirri spurningu velt upp hve miklu meiri kostnaður íslenska ríkisins hefði verið ef ákveðið hefði verið að verja bankakerfið til þrautar. Er það mat greinarhöfundar að lán til Kaupþings daginn fyrir hrun bankans og hugmyndir um að ríkið keypti 75 prósenta hlut í Glitni sýni að ráðamenn hafi ekki gert sér grein fyrir því hve alvarleg staðan hafi verið. Það hafi því reynst Íslendingum lán í óláni hve tregar aðrar þjóðir reyndust til að lána Íslendingum haustið 2008. Sú kenning að Íslendingar hafi sloppið vel vegna ákvörðunar um að leyfa bönkunum að falla eigi hins vegar ekki við rök að styðjast.
Mest lesið Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira