VÍS verður bakhjarls Hofs 4. ágúst 2011 11:06 Hof
Vátryggingafélag Íslands og Menningarhúsið Hof á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um að VÍS verði einn af bakhjörlum Hofs næstu þrjú starfsárin. Vel á annað hundrað þúsund gesta heimsóttu Hof á fyrsta starfsári en húsið var opnað í lok síðasta sumars. Hof skipar mikilvægan sess í menningar- og tónlistarlífi Norðlendinga þar sem boðið er upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir fjölbreytta viðburði. Fyrir vikið hefur menningarviðburðum fjölgað mjög á Norðurlandi sem hefur ekki eingöngu haft jákvæð áhrif á menningarlífið heldur samfélagið í heild, svo sem verslun, þjónustu og aðra atvinnuuppbyggingu. Hof er eitt af helstu kennileitum Akureyrar og er VÍS stoltur bakhjarl Hofs. „Það er okkur hjá VÍS mikið ánægjuefni að verða bakhjarlar Hofs og styðja þannig við metnaðarfullt starf þeirra í listum og menningu á Norðurlandi. Sem bakhjarl Hofs á Akureyri, Borgarleikhússins í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands leggur VÍS sitt af mörkum til stuðnings lista- og menningarlífi landsmanna, bæði norðan og sunnan heiða," sagði Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá VÍS, við undirritun samningsins. „Við hjá Hofi fögnum því að fá VÍS til liðs við okkur. Framundan er spennandi menningarvetur; tónleikar, leiksýningar, kvikmyndasýningar, myndlistarsýningar og margt fleira verður á boðstólum og því fjölbreytt dagskrá í boði fyrir landsmenn alla," sagði Karl Frímannsson, formaður stjórnar Menningarfélagsins Hofs, við sama tilefni.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira