Tom Watson fór holu í höggi 15. júlí 2011 11:30
Gamli refurinn Tom Watson fór holu í höggi á Opna breska meistaramótinu í golfi á Royal St. George's vellinum í morgun. Draumahöggið átti Watson á sjöttu holu vallarins sem er 163 metra löng par þrjú hola. Atvikið má sjá hér. Watson sem er 61 árs er á þremur höggum undir pari eftir átta holur. Einu höggi undir samanlagt. Watson er í holli með nafna sínum áhugamanninum Tom Lewis. Lewis var í forystu að loknum fyrsta degi á fimm höggum undir pari líkt og Daninn Thomas Björn. Svo skemmtilega vill til að Tom Lewis er skírður í höfuðið á Watson. Lewis hefur aðeins fatast flugið í dag og er á tveimur höggum yfir pari. Þremur undir samanlagt. Norður-Írinn Darren Clarke er farinn að sækja að efstu mönnum. Hann er á fjórum höggum undir pari eftir 15 holur. Thomas Björn er efstur á fimm undir en Björn hefur leik í hádeginu.
Golf Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Körfubolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila Enski boltinn Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Körfubolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti Fleiri fréttir Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira