Mikið kvartað undan skorti á verðmerkingum 15. júlí 2011 14:30
Mikið er kvartað undan skorti á verðmerkingum á kjötvörum til Neytendasamtakanna og ljóst er að margir eiga erfitt með að sætta sig við skannana sem settir hafa verið upp eftir að bann við forverðmerkingum tók gildi. Þá eru verðmerkingar í kjötkælum oft slæmar og erfitt að finna réttu upplýsingarnar á hillukanti eða á spjöldum þar sem verð eru listuð upp. Neytendasamtökin hafa af þessu nokkrar áhyggjur enda er mjög mikilvægt að neytendur geti á einfaldan hátt skoðað verð og tekið meðvitaða ákvörðun um kaup. Ef verðupplýsingar eru gagnsæjar og aðgengilegar eru minni líkur á að seljendur komist upp með að hækka verð því neytendur geta haldið þeim við efnið. „Ég er mest hissa á að einstaka verslanir skuli ekki sjá tækifæri í því að verðmerkja vel og jafnvel vigta sjálfar vörurnar baka til. Vissulega felst í því einhver kostnaður en ef neytendur krefjast betri merkinga ættu verslanir að verða við þeim kröfum og fá að launum meiri viðskipti," segir Brynhildur Pétursdóttir hjá Neytendasamtökunum. „Á samkeppnismarkaði hljóta fyrirtæki ávallt að leita leiða til að skjóta keppinautunum ref fyrir rass. Ég hefði haldið að þetta væri mikilvægari þjónusta en t.d. langur opnunartími og eitthvað sem neytendur kynnu betur að meta". Brynhildur segir að Neytendasamtökin séu ekki andvíg því að forverðmerkingar hafi verið bannaðar enda í hæsta máta óeðlilegt að sama verð sé á vörum sem sendar eru í allar verslanir. Afsláttamiðar sem sumar verslanir límdu síðan á sínar vörur voru villandi því í raun var ekki um neinn afslátt eða tilboð að ræða heldur einfaldlega lægri álagningu en mátti hugsanlega finna í annarri verslun. Vissulega var hentugt fyrir verslanir að fá vörur verðmerktar beint frá heildsala en þar sem það er nú bannað verða verslanir að finna aðra laus sem neytendur sætta sig við.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Sjá meira