Jólin

Jólakonfekt: Allir taka þátt

Ingvar Sigurðsson gefur lesendum uppskriftir að jólabragði fjölskyldunnar. Fréttablaðið/Valli
Ingvar Sigurðsson gefur lesendum uppskriftir að jólabragði fjölskyldunnar. Fréttablaðið/Valli

Ingvar Sigurðsson matreiðslumeistari hjá Landsvirkjun hefur þróað einfaldar uppskriftir að ljúffengu jólakonfekti sem fjölskyldan útbýr í sameiningu nokkrum dögum fyrir jól.

Fjölskyldan bakar í sameiningu á okkar heimili fyrir jólin. Við byrjuðum á þessu fyrir mörgum árum til að búa til okkar eigin jóla­hefðir," segir Ingvar Sigurðsson, matreiðslumeistari hjá Landsvirkjun.

„Gegnum tíðina höfum við þróað okkar eigin jólauppskriftir að konfekti sem við gerum nokkrum dögum fyrir jól. Uppskriftirnar eru einfaldar en í þær notum við ekta súkkulaði og úrvals hráefni. Þetta er jólabragðið okkar."- rat

Marsipanrúllur með döðlu- og fíkjufyllingu (Sushi­konfektið)
500 g Odense marsipan

100 g döðlur

100 g fíkjur

2 msk. Grand Marnier eða annar líkjör

4 msk. muldar heslihnetur

150 g dökkt súkkulaði

Saxið fíkjur og döðlur smátt og blandið saman ásamt líkjör. Fletjið marsipan út milli laga af plastpokaplasti í ferning sem er u.þ.b. 25x8 cm. Leggið fyllinguna ofan á miðjan ferninginn og rúllið upp þannig að fylling­in sé í miðri rúllunni. Mikilvægt er að rúlla nokkuð þétt.

Leggið rúlluna á smjörpappír og smyrjið með bræddu súkkulaðinu og sáldrið muldum heslihnetum í blautt súkkulaðið. Látið storkna og penslið aftur eða rúllið upp úr súkkulaði þannig að hjúpi vel.

Látið storkna (þó ekki í kæli) og skerið niður með heitum beittum hníf. Geymið í lokuðu íláti eftir að búið er að skera í bita.

Marsipan- og núggatbitar með súkkulaðihjúpi og valhnetu
200 g marsipan

100 g Odense núggat

150 g súkkulaði

15 stk. valhnetukjarnar

.
Fletjið marsipan út milli laga af plasti þar til það er 4-5 mm á þykkt. Skerið núggat í sneiðar og leggið ofan á helming marsipansins.

Leggið hinn helminginn ofan á og skerið í um 15 mola. Dýfið molunum í bráðið súkkulaðið og setjið valhnetukjarna ofan á.

Hægt er að stinga í molana með gaffli til að dýfa í súkkulaðið þar sem valhnetukjarninn kemur hvort eð er til með að hylja farið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×