Flýta rannsóknarborunum á Norðausturlandi 31. maí 2011 17:39 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Mynd/Stefán
Stjórnir Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf. hafa ákveðið að auka verulega við rannsóknir vegna undirbúnings jarðgufuvirkjana á Norðausturlandi í sumar. Markmiðið er að flýta öflun upplýsinga um afkastagetu jarðhitasvæðanna í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum til að mæta aukinni eftirspurn væntanlegra orkukaupenda á svæðinu. Þeistareykir ehf. eru í eigu Landsvirkjunar, Orkuveitu Húsavíkur og Þingeyjarsveitar. Framkvæmd rannsóknarborana er háð tilskyldum leyfisveitingum. Samanlagður kostnaður Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf. vegna aukinna rannsókna í sumar er um 500 milljónir króna, að því er fram kemur í tilkynningu. Þegar hafði verið tilkynnt um fjárfestingar fyrir 1,5 milljarð króna á Norðausturlandi fyrr á þessu ári. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir miklar vonir bundnar við umræddar framkvæmdir. „Þetta eru fyrstu rannsóknarboranir á Þeistareykjum í þrjú ár og við bindum miklar vonir við að þær muni styrkja enn frekar þann þekkingargrunn sem byggður hefur verið upp á svæðinu á umliðnum árum." Þá segir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, að um mikilvægt skref sé að ræða. „Þetta eru jákvæð tíðindi og stórt skref í þá átt að byggja upp orkufrekan iðnað í Þingeyjarsýslum."
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira