Kidd elsti bakvörðurinn til að byrja í lokaúrslitum NBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2011 19:00 Jason Kidd. Mynd/AP
Úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta hefst í kvöld þegar Dallas Mavericks sækir lið Miami Heat heim. Jason Kidd, leikstjórnandi, Dallas-liðsins er kominn í lokaúrslitin í þriðja sinn á ferlinum og hann mun setja met á fyrstu sekúndu leiksins í kvöld sem verður í beinni á Stöð 2 Sport klukkan eitt í nótt. Jason Kidd er nýorðinn 38 ára gamall og verður í kvöld elsti bakvörður sem hefur byrjað leik í lokaúrslitum NBA-deildarinnar. Hann bætir þar ellefu ára met Ron Harper sem var 36 ára þegar hann var í byrjunarliði Los Angeles Lakers 2000. Dirk Nowitzki kallar Kidd steingerving og Shawn Marion segir hann sé næstum því fimmtugur en Jason Kidd hefur engu að síður verið lykilmaður í frábærri spilamennsku Dallas-liðsins í úrslitakeppninni. Kidd er með 9,9 stig, 7,7 stoðsendingar og 2,2 stolna bolta að meðaltali í úrslitakeppninni og er að hitta betur úr þriggja stiga skotum en í deildarkeppninni þar sem hann skoraði 7,9 stig að meðaltali í leik. Kidd var með 9,6 stig, 8,8 stoðsendingar og 3,4 stolna bolta í leik í einvíginu á móti Oklahoma City Thunder í úrslitum Vesturdeildarinnar. Kidd vonast líka til að bæta annað met Harper sem er að verða elsti byrjunarliðsmaður sem hefur orðið NBA-meistari. Harper á það met frá því að hann varð meistari með Lakers fyrir ellefu árum.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira