Sala áfengis jókst milli ára í nóvember 15. desember 2011 09:00
Sala áfengis jókst um 1,7% í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlag Verð á áfengi var 3,8% hærra í nóvember síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í yfirliti frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að velta í dagvöruverslun jókst um 0,4% á föstu verðlagi í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra.. Verð á dagvöru hefur hækkað um 4,6% á síðastliðnum 12 mánuðum. Fataverslun dróst saman um 1,4% í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra en Verð á fötum hækkaði um 0,7% frá sama mánuði fyrir ári. Velta skóverslunar jókst um 7,7% og velta húsgagnaverslana jókst um 8,8% í nóvember frá sama mánuði í fyrra. Verð á húsgögnum var 4,8% hærra í nóvember síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta sérverslana með rúm jókst um 37,1% frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna dróst saman um 8,8% í nóvember síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Í yfirlitinu segir að nokkur aukning varð í byrjun jólaverslunarinnar í nóvember. Sérstaklega á það við um raftækjaverslun sem jókst um 14,9% að raunvirði frá nóvember í fyrra. Verð á raftækjum hefur þokast niður á við undanfarin misseri og sala aukist frá árunum 2009 og 2010. Þá er húsgagnaverslun farin að taka við sér eftir mikinn samdrátt á síðustu árum. Velta húsgagnaverslana hefur aukist um tæp 9% að raunvirði frá því fyrir ári síðan. Aðra sögu er að segja af fataverslun sem á enn í vök að verjast og hefur ekki náð sér á strik eftir að fór að halla undan fæti í kjölfar efnahagshrunsins. Svipaða sögu er að segja af skóverslun. Sala á dagvöru í nóvember var að magni til mjög svipuð og í fyrra, óx um brot úr prósenti, en í krónum talið var veltuaukning rúm 5%. Aukin velta að nafnvirði stafar fyrst og fremst af verðbólgu sem er um 4,6% milli ára fyrir dagvöru í nóvember.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira