Fjörutíu prósent lána í vanskilum 31. maí 2011 19:08
Um 40 prósent útlána stóru bankanna þriggja eru í alvarlegum vanskilum, en hlutfallið hefur lítið breyst síðasta árið. Seðlabankastjóri segir það ekki endilega áfellisdóm yfir skuldaúrræðum banka og stjórnvalda. Seðlabankinn birti nýjasta hefti Fjármálastöðugleikans á fundi með blaðamönnum í dag. Þar er fjallað um stöðu fjármálakerfisins, en einn af helstu áhættuþáttum þess er sagður sá að mat á eignum banka og sparisjóða er enn háð mikilli óvissu. Þá hafi endurskipulagning útlána gengið hægt, og einkum falist í framlengingu lána. Í ritinu kemur fram að alls eru 40% heildarútlána stóru viðskiptabankanna í alvarlegum vanskilum, eða greiðsla þeirra er talin ólíkleg. Fjörutíu og fimm prósent útlána til fyrirtækja eru þannig í vanskilum, en um fimmtungur útlána til heimila, þar með talin lán Íbúðalánasjóðs. Á öllum þessum vígstöðvum hefur vanskilahlutfallið lítið sem ekkert lækkað á milli ára. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segist aðspurður ekki telja þetta áfellisdóm yfir þeim aðgerðum sem bankar og stjórnvöld hafa gripið til til að lækka skuldir heimilanna. Már segir að þrátt fyrir þetta væri æskilegt að endurskipulagning skulda gengi hraðar, einkum þegar kemur að fyrirtækjum. „Það má nú ekki gleyma því að þetta var náttúrulega mjög mikið fjármálaáfall sem hér varð og þá rjúka þessi vanskil upp og það tekur tíma að vinna úr því. Ég er ekkert viss um þegar þetta verður borið saman við aðrar mjög stórar kreppur að við séum eitthvað mikið öðruvísi hvað það varðar." Þá útilokar Már ekki að mæld vanskil séu meiri en raunverulegt tilefni er til, meðal annars þar sem sumir hafi ákveðið að hætta að greiða af lánum vegna lagalegrar óvissu um eðli lánsins. Hann segir að þrátt fyrir það þurfi að draga úr þeim hluta lánasafnsins sem sé í óvissu.
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira