Harpa skapar yfir milljarð aukalega í gjaldeyristekjum 13. október 2011 10:53 Mynd/Valgarður
Ætla má að beinar og óbeinar viðbótargjaldeyristekjur vegna tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu geti numið 1,0-1,4 milljörðum kr. árlega. Sú tala gæti þó hækkað verulega ef fleiri koma til landsins sérstaklega vegna Hörpu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var af hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Þar segir að tekjur af 12.000 útlendingum sem kæmu sérstaklega vegna ráðstefna í Hörpu gætu numið á bilinu 2,1-3,0 milljörðum króna á ári. „Engin sérstök ráðstefnubygging hefur verið reist hérlendis heldur hafa ráðstefnur yfirleitt verið haldnar á hótelum á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Þá hafa ráðstefnur og vörukynningar verið haldnar í íþróttahúsum," segir í skýrslunni. „Harpa gæti tekið á móti 1.000−1.500 manna ráðstefnum nokkuð auðveldlega. Til samanburðar má lauslega áætla að Hilton Reyjavík Nordica og Grand Hótel geti haldið 600−800 og 500−600 manna ráðstefnur. Þegar hafa verið bókaðar og staðfestar 24 ráðstefnur til ársins 2015 þar sem meginþorri þátttakenda eru erlendir gestir. Gert er ráð fyrir að yfir 14.000 þátttakendur sæki umræddar ráðstefnur. Gert er ráð fyrir því að hver ráðstefnugestur dvelji að vetri til 4,6 daga á landinu en 9,9 daga að sumri til. Einnig er miðað við að gjaldeyristekjur af hverjum ráðstefnugesti geti verið á bilinu 45 til 65 þúsund kr. á hverjum degi. Er hér miðað við heildarkostnað vegna uppihalds, gistingar og flugfargjalds. Umræddar fjárhæðir eru ögn hærri en meðalneysla ferðamanna en í samræmi við tölur frá Sameinuðu þjóðunum sem og tölur frá ráðstefnum á Norðurlöndunum."
Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira