Spáir óbreyttum stýrivöxtum í mars 11. mars 2011 09:28
Greining Íslandsbanka reiknar með því að Peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum sem er 16. mars næstkomandi. Verða vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana og hámarksvextir innistæðubréfa því áfram 3,25% og 4,0% hvorir um sig, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,25% og daglánavextir 5,25%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að síðasta vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar og sú fyrsta á þessu ári var 2. febrúar síðastliðinn og lækkaði nefndin þá vexti bankans um 0,25 prósentur. Sagði nefndin samhliða í yfirlýsingu sinni að þar sem horfur eru á að verðbólga verði áfram við verðbólgumarkmiðið og í ljósi þess að vextir eru í sögulegu lágmarki ríkir aukin óvissa um í hvaða átt næstu vaxtabreytingar verða. Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa einnig óvissu til skemmri tíma. Breytti nefndin þar með um tón en í yfirlýsingu nefndarinnar vegna síðustu vaxtalækkunarinnar í fyrra sagði að nefndin telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til frekari slökunar peningalegs aðhalds, haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólgan eins og spáð er. Verðbólgan jókst lítilsháttar á milli janúar og febrúar. Fór tólf mánaða verðbólga úr 1,8% í janúar í 1,9% í febrúar. Að áhrifum hærri neysluskatta frátöldum fór verðbólgan úr 1,6% í 1,7%. Verðbólgan er því talsvert undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Slaki í þjóðarbúskapnum, hækkun á gengi krónunnar undanfarið ár og litlar verðbólguvæntingar stuðla að lágri verðbólgu um þessar mundir. Greiningin spáir 1,9% verðbólgu yfir árið 2011. Samkvæmt nýbirtum landsframleiðslutölum Hagstofunnar var samdrátturinn á síðasta ári öllu meiri en Seðlabankinn hefur reiknað með. Dróst landsframleiðslan saman á föstu verði um 3,5% samanborið við spá bankans upp á 2,7% samdrátt. Slakinn í hagkerfinu er því ívið meiri en bankinn hefur reiknað með. Horfur eru á því að verðbólgan verði lág út þetta ár og það næsta að því tilskyldu að gengi krónunnar haldist stöðugt og að eitthvert lát verði á verðhækkun hrávöru og eldsneytis erlendis. Virkir raunstýrivextir eru nú 1,5-2,0%. Líkt og Seðlabankinn hefur bent á þá eru þetta lægri raunvextir en taldir voru jafnvægisraunvextir fyrir hrun og að mati bankans hugsanlega líka lægri en þeir sem munu ríkja þegar hagkerfið kemst aftur á beinu brautina. En nú þegar hagkerfið er við botn hagsveiflunnar er eðlilegt að raunvextir séu vel fyrir neðan það sem til lengdar mun gilda. Hækkun raunstýrivaxta er samt væntanleg litið til lengri tíma. „Reikna má fastlega með því að í næstu yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar verði endurtakið að óvissa sé um í hvaða átt næsta vaxtabreyting muni verða. Framundan er afnám gjaldeyrishafta sem kann að kalla á hærri vexti á sama tíma og slakinn í hagkerfinu ástamt lágri verðbólgu gefur svigrúm fyrir vaxtalækkun. Reiknum við með því að verðbólgan muni haldast undir eða við verðbólgumarkmið bankans næstu 1-2 árin og að krónan haldist nokkuð stöðug," segir í Morgunkorninu. „Í því ljósi væntum við þess að nefndin haldi vöxtum bankans óbreyttum á næstunni, en þó með þeim skorðum sem uppbygging fjármálakerfisins og áætlun um afnám gjaldeyrishafta setja vaxtastefnunni. Reiknum við með því að nefndin taki að hækka vexti bankans á ný árið 2012 tengt viðsnúningi í hagkerfinu og afnámi gjaldeyrishafta."
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira