Hérðasdómur vísaði frá kröfu á hendur Capacent 11. mars 2011 13:44
Kröfu skiptastjóra í þrotabúi GH1 (áður Capacent) um innsetningu á eignum Capacent var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur 21. febrúar. Áður, eða þann 8. desember 2010, hafði kröfu skiptastjóra um lögbann á notkun vörumerkis Capacent verið synjað af sýslumanni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Capacent. Þar segir að starfsmenn Capacent hafa á undanförnum mánuðum orðið að sitja undir ítrekuðum rangfærslum skiptastjóra í fjölmiðlum og ásökunum um lögbrot. Fréttatíminn greinir í dag frá því að CreditInfo hafi nýlega gert tilboð um kaup á Capacent ehf. Tilboðið var sent í lok febrúar 2011, um hálfu ári eftir að starfsmenn keyptu reksturinn. Í fréttinni er staðhæft að tilboðið sé tífalt hærra en það kaupverð sem greitt var fyrir rekstur og vörumerki Capacent í september 2010. Þessi staðhæfing er röng.Í fyrsta lagi var það verð sem starfsmenn greiddu margfalt hærra en fram kemur í fréttinni. Fyrir liggur óháð mat frá einu af stærstu endurskoðunarfyrirtækjum landsins þar sem staðfest er að kaupverð hafi verið eðlilegt. Engu að síður er ágreiningur um kaupverðið og í slíkum tilvikum er eðlilegt að skorið sé úr um ágreiningsefni fyrir dómstólum. Í öðru lagi er verið að bera saman epli og appelsínur. Annars vegar kaup á eignum félags sem var að fara í gjaldþrot og hins vegar kaup á fyrirtæki í fullum rekstri. Frá því að nýja félagið var stofnað hefur starfsfólk Capacent lagt tugi milljóna í félagið og byggst hafa upp viðskiptakröfur og aðrar eignir sem ekki voru til staðar i september í fyrra, auk þess sem tókst að semja að nýju við viðskiptavini og samstarfsaðila. Við kaup á rekstri Capacent sátu viðskiptakröfur og reiðufé eftir í þrotabúinu enda veðsettar viðskiptabanka Capacent. Einungis óveðsettar eignir voru keyptar. Niðurstaða sýslumanns í lögbannsmáli, sem byggði m.a. á að veðsettar eignir höfðu verið seldar er sú að löglega hafi verið að kaupunum staðið. Á því hálfa ári sem liðið er frá þroti gamla félagsins hefur starfsfólk lagt á sig ómælda vinnu til að koma rekstri nýs félags á rétta braut. Það er í sjálfu sér ánægjulegt að önnur fyrirtæki skuli nú sýna áhuga á að kaupa reksturinn eins og hann er í dag. Félagið er hins vegar ekki til sölu. Capacent er þekkingarfyrirtæki og verðmæti þess felast í þekkingu og reynslu starfsmanna. Þau verðmæti eru hins vegar í „eigu“ starfsmanna en ekki félagsins. Með kaupum starfsmanna á rekstrinum var tryggt að félagið hefði áfram aðgang að þekkingu starfsmanna. Samhliða var tryggt að um hundrað störf voru varin, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira