Íslendingar treysta vel vinnuveitendum sínum 11. mars 2011 14:02
Íslendingar bera mjög mikið traust til eigin vinnuveitenda og eru jákvæðir í garð íslenskra fyrirtækja. Traust þeirra til eigin vinnuveitanda skorar einna hæst í árlegum mælingum Capacent Gallup á trausti til stofnana og embætta. Aðeins Landhelgisgæslan og lögreglan njóta meira trausts meðal fólks. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök atvinnulífsins (SA). Nærri þrír af hverjum fjórum (74,3%) eru jákvæðir gagnvart sínum vinnustað og bera mikið traust til eigin vinnuveitanda. Aðeins 11,1% bera lítið traust til eigin vinnuveitanda. Fjallað er um málið á vefsíðu SA. Þar segir að niðurstöðurnar eru uppörvandi og sýna að þrátt fyrir ýmis áföll í atvinnulífinu og mjög neikvæða umræðu ber almenningur mikið traust til íslenskra fyrirtækja og er jákvætt í garð atvinnurekstrar. Þessar niðurstöður sýna jafnframt að íslensk fyrirtæki eru mikilvægur hluti innviða landsins og þau munu gegna lykilhlutverki í því endurreisnarstarfi sem er framundan. Þegar spurt var almennt um traust til íslenskra fyrirtækja eru 45,1% Íslendinga sem bera mikið traust til þeirra, 38,2% eru hlutlaus, en 16,7% bera lítið traust til þeirra. Ríkissáttasemjari nýtur álíka traust og fyrirtækin en því næst kemur ríkissaksóknari og dómskerfið. Um var að ræða síma- og netkönnun fyrir Samtök atvinnulífsins dagana 2.-10. febrúar 2011. Í úrtakinu voru 1918 manns á öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og þjóðskrá. Svarhlutfall var 58,8%.
Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira