Þjálfari Orlando líkir David Stern við einræðisherra Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 11. mars 2011 23:30 Stan Van Gundy þjálfari NBA liðsins Orlando Magic gerir eitt mjög vel – að tala AP
Stan Van Gundy þjálfari NBA liðsins Orlando Magic gerir eitt mjög vel – að tala, og nú hefur hinn litríki þjálfari reitt David Stern framkvæmdastjóra NBA deildarinnar til reiði. Enda ekki á hverjum degi sem Stern er líkt við einræðisherra. Gundy er ekki sáttur við þá meðferð sem miðherjinn Dwight Howard fær hjá dómurum deildarinnar. Gundy hefur nú gengið enn lengra í gagnrýni sinni á Stern og líkir hann stjórnunaraðferðum hans við það sem þekkist í einræðisríkjum. „Þetta kerfi sem við búum við er það sem David Stern og hans lærisveinar hafa skapað. Ég má ekki hafa skoðun á því, og ég get ekki gagnrýnt þetta kerfi. David Stern þolir ekki að aðrir hafi skoðun og láti þær í ljós – líkt og margir leiðtogar heimsins. Málfrelsið er ekki til staðar," sagði Gundy en hann var sektaður um 35.000 bandaríkjadali í janúar fyrir að lýsa óánægju sinni með dómara. Stern mun eflaust bregðast hart við þessum orðum Gundy og ætlar framkvæmdastjórinn að ræða málið við eigendur Orlando Magic.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira