Vísar því á bug að World Class hafi verið keypt fyrir slikk Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. nóvember 2011 18:04 Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Björns Leifssonar og Lauga ehf.
Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, segir af og frá að kaupverð Lauga ehf., sem er í eigu Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur, á rekstri World Class af félagi sem var í þeirra eigu hafi aðeins verið 3 prósent af verðmati dómkvaddra matsmanna. „Tekið skal fram að umbjóðendur mínir yfirtóku allar skuldir Þreks við viðskiptavini þ.e. þá sem höfðu greitt fyrirfram fyrir líkamsræktarkort. Sú skuld var um 250 milljónir. Bú Þreks var því losað undan þeirri skuld. Auk þess sem allar kröfur vegna starfsfólks voru yfirteknar," segir Sigurður.Krafa Landsbankans tryggð með öllum eignum Björns og Hafdísar Sigurður segir að við gjaldþrot Þreks ehf. hafi aðeins sex kröfum verið lýst. „Tvær smákröfur samtals 2 milljónir. Ein áætluð skattkrafa sem féll niður ,tvær kröfur frá Straumi - Burðarási og ein frá Landsbanka Íslands. Krafa Landsbanka Íslands er ábyrgðarkrafa og kemur ekki til með að falla á búið enda tryggð í eignum umbjóðenda minna. Kröfur Straums eru annars vegar krafa upp á um 300 milljónir, sem Straumur keypti 1. október 2009 af Nýja Kaupþingi banka. Straumur var þá í greiðslustöðvun. Í ábyrgð fyrir þessari kröfu er Björn Leifsson. Straumur hefur höfðað mál á hendur Birni, sem er uppi með gagnsök í því máli, enda telur hann sig hafa orðið fyrir miklu tjóni vegna ráðgjafar Straums um fjárfestingar í Danmörku 2006 - 2008. Hin krafa Straums er vegna láns sem Þrek tók hjá Straumi í júní 2008. Á sama tíma skuldbatt Straumur sig til að leggja Þreki til 540 milljónir í nýju hlutafé. Við það loforð hafði Straumur ekki staðið þegar hann komst í greiðsluþrot 9. Mars 2009. Síðan þá hefur verið ágreiningur milli Straums og Björns og til að vernda hagsmuni sína var gengið frá Kaupum Lauga á tilteknum rekstrarfjármunum Þreks þann 4. sept 2009 undir handleiðslu Gests Jónssonar hrl., segir Sigurður G. Guðjónsson," en þarna er Sigurður að vitna til hinnar umdeildu sölu á Þreki ehf. á 25 milljónir króna fjárhæðar vegna kuldbindinga gagnvart starfsfólki og viðskiptavinum, sem Sigurður segir að hlaupi á þriðja hundrað milljónum króna, eins og framan greinir. Sigurður segir að þetta samkomulag hafi verið kynnt Straumi (sem heitir ALMC í dag) sem hafi talist hluthafi í Þreki ehf. „Þá kom fram krafa um að Straumur vildi 30 prósenta hlut í Laugum ehf. Því var hafnað og þá hljóp Straumur í Nýja Kaupþing og keypti kröfu sem var örugg til að keyra Þrek í þrot, sem var gert," segir Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Lauga ehf. og Björns Leifssonar. Eins og fréttastofa greindi frá í dag fóru eigendur Lauga ehf. fram á eigið mat á verðmæti World Class og verður krafa um slíkt tekin fyrir í næstu viku. Skiptastjóri þrotabús Þreks ehf. hefur þó lýst því yfir að hann vilji semja við eigendur Lauga ehf. áður en dómur gengur í málinu. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir Greiddu 3 prósent af raunvirði World Class Dómkvaddur matsmaður sem var fenginn til að meta verðmæti World Class metur reksturinn á átta hundruð til eitt þúsund milljónir króna en Björn Leifsson og kona hans seldu sjálfum sér fyrirtækið á tuttugu og fimm milljónir. 24. nóvember 2011 12:02 Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Greiddu 3 prósent af raunvirði World Class Dómkvaddur matsmaður sem var fenginn til að meta verðmæti World Class metur reksturinn á átta hundruð til eitt þúsund milljónir króna en Björn Leifsson og kona hans seldu sjálfum sér fyrirtækið á tuttugu og fimm milljónir. 24. nóvember 2011 12:02