Skatturinn á eftir fyrirtækjum sex ár aftur tímann Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. nóvember 2011 18:19
Ríkisskattstjóri hefur sent bréf til fjölda fyrirtækja vegna samsköttunar við skuldsettar yfirtökur sex ár aftur í tímann. Fjöldi fyrirtækja eiga yfir höfði sér endurálagningu skatta og fjárhæðirnar gætu hlaupið á milljörðum króna. Í fjöldamörg ár hafa fyrirtæki túlkað ákvæði 31. greinar laga um tekjuskatt þannig að við samruna tveggja fyrirtækja með skuldsettri yfirtöku sé vaxtakostnaður vegna láns fyrirtækis A frádráttarbær frá hagnaði þess fyrirtækis sem tekið er yfir, fyrirtæki B, eins og sést á grafík sem fylgir sjónvarpsútgáfu fréttarinnar.Undið ofan af framkvæmdinni Núna vill embætti ríkisskattstjóra vinda ofan af þessari framkvæmd og hefur embættið sent á annan tug erinda til fyrirtækja þar sem embættið vill skoða endurálagningu sex ár aftur í tímann, en Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu. Skúli segir að fjárhæðirnar í þeim málum sem séu þegar til skoðunar hlaupi samtals á tugum ef ekki hundruðum milljóna króan. Nú þegar hefur verið ákveðin endurálagning á eitt fyrirtæki og fer það mál líklega fyrir dómstóla. Aðalsteinn Hákonarson hjá RSK sagði að við samruna félaga af þessu tagi væri verið að leysa hagsmuni hluthafa og því kæmi vaxtakostnaður yfirtekna félaginu ekki við. KPMG hefur fengið fjölda fyrirspurna frá fyrirtækjum sem hafa fengið bréf frá RSK og öðrum sem eru í svipaðri stöðu og hafa fengið spurnir af slíkum bréfum. Heimildarmenn fréttastofu segja að þetta mál sé alls ekkert gamanmál, en það sé býsna kaldhæðnislegt að þau fyrirtæki sem lifðu kreppuna af og farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu, fái hugsanlega náðarhöggið frá skattinum. Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, sagði fjárhagslega endurskipulagningu ekki málefnalega málsástæðu ef fyrirtæki hefði vanrækt skattsskyldur sínar árin á undan og fyrirkomulag skattamála hefði ekki verið í samræmi við lög.Undrast vinnubrögð RSK Alexander Edvardsson, forstöðumaður skattasviðs KPMG, segir menn þar á bæ undrast þau vinnubrögð RSK að segja fyrirkomulag, sem tíðkast hafi árum saman án athugasemda frá embættinu, ólögmætt. Auk þess sé þetta ekki í samræmi við þá túlkun á skattalögunum sem lögð hafi verið til grundvallar. „Við teljum að þarna sé um eðlilegan frádráttarbæran rekstrarkostnað að ræða og það er hægt að líta til þess að félög sem eru samsköttuð, þ.e móðurfélag sem á meirihluta í öðru félagi, og heimilt að samskatta, þá eru þessi rekstrargjöld eðlilegur, frádráttarbær rekstrarkostnaður og tilgangurinn með samsköttuninni er að um eitt félag sé að ræða. Þegar félögin eru svo sameinuð og ekki er lengur um að ræða tvö félög sem eru samsköttuð, heldur eitt félag, þá er þetta allt í einu orðið ólöglegt og ekki frádráttarbær rekstrarkostnaður. Okkur finnst þetta ekki standast," segir Alexander. Verður það þá ekki dómstóla að skera úr um þetta? „Mér sýnist það, þetta eru það háar fjárhæðir sem þarna eru í spilinu, þetta hleypur á milljörðum veit ég að gætu orðið viðbótarskattar hjá félögum. Þannig að væntanlega endar þetta fyrir dómstólum." thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Katrín Ósk og Olgeir til Aha Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Sjá meira