Litháísk kona, sem grunuð er um að hafa skilið andvana barn sitt eftir í ruslageymslu í júlí, er sakhæf samkvæmt niðurstöðu geðrannsóknar sem nú liggur fyrir. Endanleg ákvörðun um sakhæfi hennar er í höndum dómara að aðalmeðferð málsins lokinni.
Konan sætir farbanni, sem rennur út 29. september næstkomandi. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á lokastigi og að henni lokinni verður málið sent til ríkissaksóknara.
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá leiddu niðurstöður DNA-rannsóknar í ljós að sveinbarnið átti blóðföður hér á landi. Faðirinn og móðirin bjuggu saman heima hjá föður hans um skeið eftir að hún kom til Íslands frá Litháen í október í fyrra, en slitu síðan samvistir. Faðir barnsins hafði ekki grun um að konan væri barnshafandi fremur en aðrir sem umgengust hana.
Það var laugardaginn 2. júlí sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann nýfætt andvana sveinbarn, sem komið hafði verið fyrir í plasti þar sem það var ekki fyrir sjónum manna í ruslageymslu við hótel Frón í Reykjavík.
Rúmlega tvítug kona hafði skömmu áður fengið aðstoð á Landspítala vegna mikilla blæðinga. Þar töldu læknar að hún hefði fætt barn skömmu áður eða á síðasta sólarhring, þrátt fyrir að hún segðist ekki kannast við að hafa verið ófrísk. Hún hafði unnið sem herbergisþerna á umræddu hóteli og mun hafa fætt barnið þar.
Lögregla taldi ljóst að barnið hefði verið á lífi og heilbrigt þegar það fæddist og er konan ein talin bera ábyrgð á andláti þess. - jss
Athugasemd: Upphaflega hljóðaði fyrsta setning fréttarinnar svo: „Litháísk kona, sem grunuð er um að hafa skilið andvana fætt barn sitt eftir í ruslageymslu ...“ Orðið „fætt“ hefur verið fjarlægt úr textanum, enda liggur fyrir að barnið var heilbrigt og á lífi þegar það kom í heiminn. Það var því ekki „andvana fætt“.
Geðlæknir metur litháísku móðurina sakhæfa
