Róbert Wessman gaf skýrslu hjá sérstökum saksóknara 3. desember 2011 18:45
Yfirheyrslur hafa staðið yfir í allan dag hjá sérstökum saksóknara vegna rannsóknar á málefnum Glitnis. Á meðal þeirra sem gáfu skýrslu í dag var Róbert Wessman svo og núverandi og fyrrverandi starfsmenn Íslandsbanka. Fjölmargir voru yfirheyrðir í tengslum við rannsóknina á málefnum Glitnis í dag. Þeirra á meðal var Ingi Rafnar Júlíusson, fyrrverandi starfsmaður bankans, sem hefur setið í gæsluvarðhaldi síðustu þrjá sólarhringa ásamt þeim Lárusi Welding, fyrrum forstjóra bankans, og Jóhannesi Baldurssyni, fyrrum framkvæmdastjóra markaðsviðskipta. Sérstaklega er verið að rannsaka meint brot sem falla undir markaðsmisnotkun sem grunur er um að staðið hafi yfir margra ára tímabil. Fyrrverandi og núverandi starfsmenn bankans voru einnig boðaðir í skýrslutöku í dag. Þá mætti Róbert Wessman í morgun til skýrslutöku en félag hans Salt Investment keypti hlutabréf í Glitni fyrir sex milljarðar króna fáeinum dögum áður en ríkið tók yfir Glitni og fékk lán frá bankanum til þess. Róbert segir skýrslu eingöngu hafa verið tekna af honum sem vitni í málinu og að hans frumkvæði. Hann fagni jafnframt rannsókninni. Í yfirlýsingu sem Salt Investment sendi frá sér í gær segir að félagið telji bankann hafa blekkt sig. Aðeins mánuði fyrir efnahagshrunið hafi Lárus Welding, þáverandi forstjóri Glitnis, fullyrt að staða bankans væri mun sterkari en raunin var og þar með blekkt fyrirtækið til að taka þátt í kaupunum.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Sjá meira