Fjárfestu ekki skynsamlega 6. júní 2011 05:15 ASÍ telur breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu geta komið í veg fyrir að gengi krónunnar styrkist jafn mikið og það eigi að gera. Fréttablaðið/JSE „
Útgerðarmenn hafa verið áhættusæknir í fjárfestingum sínum sem margar hafa gefist illa. Það er óvarlegt að draga þær ályktanir að breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafi neikvæð áhrif á raungengið,“ segir ÞórólfurMatthíasson, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands. Í drögum að minnisblaði hagdeildar Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á kvótakerfinu kemur fram að það veiki rekstrargrundvöll sjávarútvegsfyrirtækja og geti hamlað gengisstyrkingu krónunnar. Þá geta áhrifin orðið þau að verðmæti fyrirtækjanna minnki og því haft neikvæð áhrif á lánasöfn bankanna. Drögin verða lögð fram fyrir miðstjórn ASÍ á miðvikudag og mun það liggja til grundvallar afstöðu sambandsins til kvótafrumvarpanna. ASÍ hefur gefið út að raungengi krónunnar sé of lágt nú um stundir og gæti það að óbreyttu styrkst um 20 til 25 prósent. Í drögum að minnisblaði kemur fram að fyrirhugaðar breytingar á kvótakerfinu setji strik í reikninginn. Stoðir sjávarútvegsfyrirtækjanna sem atvinnugreinar verði veikari en ella, sérstaklega tengsl veiða og vinnslu, sem sé fjármagnsfrekur liður. Óvissan geti leitt til þess að fjárfesting í nýjum tækjum dragist saman og að samkeppnishæfni íslensk sjávarútvegs falli gagnvart keppinautum. Af þeim sökum sé ósennilegt að sú gengisstyrking gangi eftir sem ASÍ reiknaði með. Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, vildi ekki tjá sig um minnisblaðið í samtali við Fréttablaðið. Þórólfur bendir á að þegar útgerðarmenn hafi verið hvað tryggasta með kvótann hafi þeir ekki fjárfest í sjávarútvegi heldur flutt umframhagnað yfir í aðrar atvinnugreinar, byggt stórhýsi í Reykjavík, keypt verslanir og banka. „Útgerðarmenn hafa verið mjög áhættusæknir í fjárfestingum sínum og ekki farið vel út úr þeim. Það er því mjög óvarlegt að draga þessar ályktanir um áhrif á raungengið,“ segir hann. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira