Átti að sækja um 160 undanþágur 6. júní 2011 05:00 Lúðvík sendi Seðlabankanum undanþágubeiðni í maí og óskaði eftir því að fá staðfestingu fyrir móttöku til baka. Hann lét frímerki fylgja með svo Seðlabankinn slyppi við burðargjaldið. Í svarbréfi Seðlabankans fylgdi frímerkið með ásamt skýringum. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég er á móti því að einn fái undanþágu en ekki annar,“ segir Lúðvík Júlíusson. Hann hefur staðið í stappi við Seðlabankann um nokkurra mánaða skeið til að fá gjaldeyrishöftunum breytt. Hann vill láta gera þau mannlegri, fólk sé ekki reitir í excel-skjali. Lúðvík hefur sent umboðsmanni Alþingis og Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, kvörtun vegna gjaldeyrishaftanna enda telur hann á sér brotið. Lúðvík á erlendar eignir en er skikkaður til að skila fjármagnstekjum af þeim heim í samræmi við reglur um skilaskyldu á gjaldeyri. Ekki er um háar fjárhæðir að ræða. Hann var sjómaður í Sandgerði og byggði upp sparnað með mjög dreifðri fjárfestingu utan landsteinanna þegar gengi krónunnar var sterkt. Þær skila honum um eitt þúsund Bandaríkjadölum á ári, tæpum 115 þúsund krónum, sem dreifast á 160 eignir. Arður af hverri fjárfestingu er mjög lítill. Samkvæmt reglum um skilaskyldu á sá sem er með eina milljón evra, jafnvirði 160 milljóna króna, í erlendar fjármagnstekjur hvorki að tilkynna það til Seðlabankans né skila þeim heim sé féð nýtt til endurfjárfesta erlendis. Vaxtatekjum upp á eitt evrusent, 1,65 krónur, þarf að skila til Seðlabankans eða sækja um undanþágu. „Ég er ekki að fara fram á forréttindi heldur er ég aðeins að fara fram á sömu réttindi og þeir sem eru með háar fjármagnstekjur fá í gjaldeyrishöftunum,“ segir Lúðvík. Hann sótti um undanþágu frá gjaldeyrishöftunum í fyrra en fékk neitun á þeim forsendum að tekjurnar ógnuðu stöðugleika í gengis- og peningamálum. Hann segir að þar sem upphæðirnar dreifist yfir árið kosti það sig um 65 þúsund krónur að skila fénu heim. Lúðvík kærði upphaflega ákvörðun Seðlabankans til efnahags- og viðskiptaráðuneytis en fékk þau svör að ákvörðun Seðlabankans hefði verið gild. Bent var á að hann yrði að senda undanþágur fyrir hverja greiðslu sem honum bærist, alls 160 beiðnir. Í kjölfarið sendi hann inn sautján undanþágubeiðnir, þar af eina upp á átta evrusent, þrettán íslenskar krónur. Svör bárust mishægt, í sumum tilvikum þurfti hann að bíða í á fjórða mánuð. Þetta skilaði honum á endanum undanþágu til hálfs árs. Lúðvík sótti enn á ný um undanþágu frá höftunum um miðjan síðasta mánuð og barst svar daginn eftir þar sem fram kom að afgreiðslutími erindisins væri að lágmarki fjórar vikur. Útgerðarfélagið Samherji fékk um svipað leyti heimild til að taka út rúmar 1,2 milljónir króna í evrum og pundum sama dag og beiðni barst vegna fyrirhugaðs ferðalags nokkurra starfsmanna til Brussel í apríl. „Ég kvartaði undan þessum vinnubrögðum,“ segir Lúðvík og átelur Seðlabankann fyrir mismunun.jonab@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira