Áherslan á þjónustu 2. mars 2011 08:00 Þeir Játvarður og Davíð halda ótrauðir inn á fjarskiptamarkaðinn. Fréttablaðið/Stefán
Nýtt fjarskiptafyrirtæki að nafni Hringdu tók til starfa í síðasta mánuði og stefnir að því að bjóða viðskiptavinum sínum upp á ódýrari valkosti í internetþjónustu og heimasíma. Frændurnir Davíð Fannar Gunnarsson og Játvarður Jökull Ingvarsson stofnuðu Hringdu eftir að hafa áður reynt fyrir sér með fyrirtækið callit.is, sem sérhæfir sig í ódýrum símtölum til útlanda. „Það má segja að hugmyndin að Hringdu hafi sprottið út frá því," segir Játvarður í samtali við Markaðinn. „Við fórum að skoða það verð sem var í boði á markaðnum og sáum að við gætum boðið upp á internet-þjónustu og heimasíma á góðu verði." Hringdu nýtir sér dreifikerfi Símans, en er að öðru leyti óháð öðrum fyrirtækjum á markaðnum. Játvarður segir að lykillinn að því að lítið fyrirtæki, nýtt á markaði, geti boðið betra verð sé takmörkuð yfirbygging og elja. „Við vinnum bara fjórir hjá fyrirtækinu eins og er, og erum að fram á öll kvöld. Þannig erum við að láta þetta ganga." Hann segir viðbrögðin hafa komið þeim nokkurn veginn í opna skjöldu og þeir hafi þurft að hafa sig alla við til að sinna viðskiptavinum. „Þetta byrjaði með miklum látum hjá okkur, en við leggjum mikla áherslu á að geta sinnt okkar kúnnum. Það skiptir meira máli að sinna okkar fólki vel heldur en að sprengja sig á kostnað þjónustunnar strax í upphafi." - þj
Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira