Afskriftaþörf Íbúðalánasjóðs enn óljós 2. mars 2011 06:00 Heimild Íbúðalánasjóðs til niðurfærslu lána eiga að ná til viðskipta sem voru gerð fyrir árslok 2008. fréttablaðið/pjetur fréttablaðið/pjetur
Fram er komið frumvarp sem veitir Íbúðalánasjóði heimild til að færa niður veðkröfur á hendur einstaklingum í 110 prósent af verðmæti fasteignar. Með því er sjóðnum veitt nauðsynleg lagastoð til að taka þátt í aðgerðum stjórnvalda vegna skulda- og greiðsluvanda heimilanna. Drög að samkomulagi stjórnvalda og fjármálastofnana um aðgerðir voru undirrituð í byrjun desember á síðasta ári og verklagsreglur ákveðnar um miðjan janúar. Þá var ekki talin þörf á að breyta lögum um Íbúðalánasjóð. Síðar kom í ljós að slíkrar breytingar þyrfti við. Frumvarpinu fylgja löng greinargerð og fylgiskjal frá fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Í þeim er meðal annars fjallað um afskriftaþörf Íbúðalánasjóðs, margar tölur nefndar í því sambandi og ýmsir fyrirvarar gerðir. Í greinargerðinni segir að kostnaður við niðurfærslu sjóðsins vegna aðgerðanna sé áætlaður tæpir 22 milljarðar en í áætlunum sjóðsins sjálfs komi fram að líklega kunni kostnaðurinn að verða lægri, jafnvel fimmtán milljarðar. Í umsögn fjármálaráðuneytisins segir að Íbúðalánasjóður áætli að afskriftaþörf vegna frumvarpsins geti að hámarki orðið um 27 milljarðar. Segir jafnframt að endanlegar tölur um afskriftir vegna þessa úrræðis muni ekki liggja fyrir fyrr en seint á árinu.- bþs
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira