Miami Heat búið að láta Arroyo fara - Bibby á leiðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2011 13:30 Carlos Arroyo með þeim LeBron James og Dwyane Wade. Mynd/AP
Miami Heat er byrjað að undirbúa komu leikstjórnandans Mike Bibby því liðið lét Carlos Arroyo fara í gær til þess að búa til pláss í leikmannahópnum fyrir þennan fyrrum leikstjórenda Atlanta Hawks og Sacramento Kings. Bibby tókst aldrei að vinna titilinn með Sacramento en var tilbúinn að fórna góðum samningi til þess að komast í lið sem átti möguleika á því að vinna titilinn. Bibby er væntanlegur til Suður-Flórída í dag og ætti jafnvel að spila fyrsta leikinn með liðinu á móti Orlando Magic á fimmtudagskvöldið. Atlanta skipti Bibby til Washington á dögunum en hann lék aðeins tvo leiki með Wizards áður en hann fékk sig lausan frá félaginu. LeBron James talaði við Mike Bibby eftir leik í síðustu viku og þó svo að hann vilji ekki segja um hvað var rætt þá er það öllum ljóst að þar var James að sannfæra Bobby um að gera starfslokasamning við Washington Wizards og koma til Miami. Bibby var með 9.4 stig og 3,6 stoðsendingar að meðaltali með Atlanta í vetur en hann á að bak 80 leiki í úrslitakeppni NBA-deildarinnar og sú reynsla ætti að nýtast Miami-liðinu vel. Hann yrði reyndasti leikmaður liðsins í úrslitakeppni en í dag hafa þeir LeBron Jame og Zydrunas Ilgauskas leikið flesta leiki eða 71. Carlos Arroyo var byrjunarliðsmaður í byrjun tímabilsins en missti síðan sætið sitt til Mario Chalmers eftir að hafa byrjað 42 fyrstu leikina. Arroyo hafði síðan aðeins spilað samtals 27 mínútur síðan 30. janúar og það var því orðið nokkuð ljóst að Erik Spoelstra ætlaði ekki að nota hann.
NBA Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Sjá meira