Enn ríkir mikil svartsýni meðal stjórnenda fyrirtækja 23. mars 2011 12:20
Enn ríkir mikil svartsýni á meðal íslenskra stjórnenda á ástandið í efnahagslífinu og hefur afstaða þeirra til þess lítið batnað frá bankahruni. Þetta má sjá úr niðurstöðum ársfjórðungslegrar könnunar sem Capacent Gallup gerir á meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins um aðstæður í efnahagslífinu, en hún sýnir að yfirgnæfandi meirihluti þeirra telur aðstæður slæmar. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig telja tæp 80% stjórnenda aðstæður í efnahagslífinu slæmar, tæp 19% telja þær hvorki góðar né slæmar og einungis 2% að þær séu góðar. Þó er þetta örlítið skárri niðurstaða en fékkst úr síðustu könnun sem var gerð í desember en þá töldu 84% aðstæður slæmar, 15% aðstæður hvorki góðar né slæmar og nánast enginn að þær væru góðar. Könnunin var gerð á tímabilinu 14. febrúar til 13. mars 2011 og voru niðurstöður hennar birtar á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins í gær. Um 22% stjórnenda telja að aðstæður verði betri eftir 6 mánuði og eru það hlutfallslega færri en í síðustu könnun þegar um 25% þeirra sá fram á betri tíð eftir 6 mánuði. Þó hefur fækkað í hópi þeirra sem telja að ástandið eigi eftir að versna á tímabilinu frá síðustu könnun, en þeir eru 24% nú á móti 30% síðast. Fjölgar því hópi þeirra sem telja að ástandið verði óbreytt eftir 6 mánuði frá síðustu könnun og fer hlutfallið úr 45% í 54%. Þessar niðurstöður koma ekki á óvart enda er raunin sú að ástandið hefur lítið breyst að mörgu leyti undanfarna þrjá mánuði. Má hér nefna að enn er ekki komin niðurstaða í hinu umdeilda Icesave-máli, og er málið þar með enn eitt það heitasta á kaffistofum landsins í dag, enn ríkir töluverð spenna hjá stjórnvöldum og í raun má segja að efnahagslífið er vart farið að rétta úr kútnum eftir verulegt samdráttarskeið í kjölfar bankahrunsins.
Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira