Viðskipti innlent

Gjaldeyrisforði Seðlabankans kominn í 983 milljarða

Gjaldeyrisforði Seðlabankans er kominn í tæplega 983 milljarða króna og jókst hann um rúmlega 71 milljarð króna í október.

Þetta kemur fram í efnahagsreikningi Seðlabankans sem birtur er á vefsíðu bankans. Nettóstaðan á forðanum, það er hrein gjaldeyriseign bankans, nemur nú 266 milljörðum króna og jókst um 19 milljarða króna í október.

Þá jókst verðmæti gullforða bankans um rúmlega 200 milljónir króna og stendur hann í tæplega 12,5 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×