Viðskipti innlent

Slitameðferð Kaupþings vísað til EFTA dómstólsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Leitað verður ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á því hvort tilteknir þættir í slitameðferð Kaupþings hafi samræmst reglum um EES, samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Málið tengist kröfu sem Anglo Irish Bank á Írlandi gerir á hendur Kaupþingi upp á samtals 15 milljónir evra.

Bankinn hafnaði kröfunum með þeim rökum að tölvupóstur sem Anglo Irish Bank sendi í lok október 2008 gæti ekki talist kröfulýsing í skilningi laga um gjaldþrotaskipti og laga um fjármálafyrirtæki. Ekki náðist samkomulag um kröfuna á kröfuhafafundi og því ákvað Anglo Irish Bank að stefna Kaupþingi.

EFTA dómstóllinn mun veita ráðgefandi álit um það hvort það samræmist tilskipun Evrópusambandsins að birta innköllun til lánadrottna í ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins með þeim hætti sem Kaupþing gerði. Þá muni EFTA skýra frá því hvaða áhrif það hafi við slitameðferð stofnunarinnar ef innköllun krafna hefur ekki verið samkvæmt umræddri tilskipun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×