Viðskipti innlent

Alls óljóst hvenær Nubo verður svarað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ögmundur segir það eitt víst að Nubo verði svarað sem fyrst.
Ögmundur segir það eitt víst að Nubo verði svarað sem fyrst. mynd/ valgarður.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir ekkert til um það hvenær hann mun svara erindi Huangs Nubo vegna fyrirhugaðra kaupa hans á jörð á Grímsstöðum á Fjöllum. Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Ögmund út í málið á Alþingi í dag. Kristján sagði að hér væri um miklar tekjur að ræða sem myndu skila sér sem tekjur við nýsköpun.

„Þetta er stórt mál að ræða og það verður vandað til úrskurðarins sem væntanlega verður tilbúinn fljótlega. Ég get ekkert sagt um þetta annað en það að hann verður tilbúinn eins fljótt og auðið er," sagði Ögmundur.

Kristján krafðist þá skýrra svara um það hvort ráðherra hyggðist veita Nubo leyfi fyrir þessum kaupum, en þau svör fékk hann ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×