Enginn rannsóknaraðili kvaddur til vitnis Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. október 2011 09:55 Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður er verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Enginn þeirra sem rannsakað hefur meint skattalagabrot Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í skattahluta Baugsmálsins svokallaða var kallaður sem vitni fyrir dóminn. Þetta sagði Gestur Jónsson lögmaður hans þegar hann krafðist sýknudóms í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Það væri engu að síður venja að menn sem kæmu að rannsókn mála væru kallaðir til vitnis. Gestur varpaði fram þeirri spurningu af hverju ákæruvaldið hefði ekki séð ástæðu til að kalla rannsóknaraðila, frá skattrannsóknarstjóra, ríkisskattstjóra eða ríkislögreglustjóra fyrir dóminn . Hluti af ástæðunni væri sá að málsmeðferðartíminn væri orðinn svo langur að margir af þeim sem komu að rannsókn málsins væru komnir í allt önnur störf. Gestur sagði að sakborningar í málinu hefðu allir neitað sök og gefið skýringar á sakarefninu. Þá sagði Gestur jafnframt að ákæruvaldið hefði kallað níu vitni fyrir dóminn. Framburður þeirra styddi framburð sakborninga. Það yrði því ekki sakfellt á grundvelli vitnisburðar þeirra. Loks sagði Gestur að fyst játning lægi ekki fyrir og engin sönnun fengist með framburði vitna þá yrði sönnun að fást með skjölum sem lægju fyrir í málinu. Gestur sagðist hafa tekið eftir því að saksóknari sækti alla sína sönnunarfærslu í gögn frá skattayfirvöldum, sem eru skattrannsóknarstjóri, ríkisskattstjóri og yfirskattanefnd. Málsmeðferð hjá fyrrgreindum stjórnvöldum geti ekki verið grundvöllur sakfellingar fyrir dómi vegna þess hve ólík málsmeðferðin hjá þeim er málsmeðferðinni fyrir dómi.
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira