Þurfa að endurreikna þúsundir lánasamninga Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. október 2011 21:10 Birna Einarsdóttir er forstjóri Íslandsbanka. Mynd/ GVA.
Gert er ráð fyrir að fjármálastofnanir þurfi að endurútreikna þúsundir fjármögnunarsamninga vegna Kraftvélaleigudómsins sem féll í Hæstarétti í dag. Heildarverðmæti samninganna skiptir milljörðum. Í málinu var samningur sem Kraftvélaleigan gerði við Glitni árið 2007 til að fjármagna kaup á stórri vinnuvél dæmdur ólöglegur. Vegna dómsins mun Íslandsbanki þurfa að endurreikna 5000 samninga sem voru gerðir við 1100 lögaðila. Vísir hefur ekki upplýsingar um það hver heildarupphæð samninganna er. Bankinn sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann sagði að varúðarreikningur bankans standi undir þeirri niðurstöðu sem í dag var staðfest í Hæstarétti. Lykilstarfsmenn bankans funduðu í kvöld til þess að fara yfir dóminn og munu væntanlega funda frekar á morgun. Hjá Landsbanka Íslands munu menn þurfa að endurreikna 2500 samninga, segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi bankans, við Vísi. „En þetta mun hafa óveruleg fjárhagsleg áhrif," segir Kristján. Hann segir að samningarnir hafi á sínum tíma ekki verið gerðir við Landsbankann, heldur við SP fjármögnun. SP fjármögnun var þá sjálfstætt fyrirtæki en er nú orðið svið innan Landsbankans. Ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um það hve margir samningar af þessu tagi höfðu verið gerðir hjá Kaupþingi, sem nú heitir Arion banki. Þá eru áhrif dómsins á fjármögnunarfyrirtækið Lýsingu heldur ekki kunn.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira