Minnkandi sala á fötum og skóm í október 15. nóvember 2011 08:59 Myndin er úr safni.
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 1,9% á föstu verðlagi í október miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 2,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana í október saman um 0,1% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 4,8% á síðastliðnum 12 mánuðum. Sala áfengis dróst saman um 11,3% í október miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 7,8% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í október 3,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 3,9% hærra í október síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun dróst saman um 19,6% í október miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 18,6% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta fataverslunar í október saman um 16,4% frá sama mánuði árið áður. Verð á fötum var 1,3% lægra en í sama mánuði fyrir ári. Velta skóverslunar dróst saman um 25,1% í október á föstu verðlagi og um 22,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði um 3,3% frá september í fyrra. Velta húsgagnaverslana jókst um 5,1% í október frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og um 8,6% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 3,3% hærra í október síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta sérverslana með rúm jókst um 10,3% frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna dróst saman um 0,1% í október síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Sala á raftækjum í október dróst saman um 1,9% á föstu verðlagi og um 4,8% á breytilegu verðlagi. Verð á raftækjum var 2,9% lægra en í október 2010. Almennt varð samdráttur í verslun í október, þó mismikill eftir tegundum. Þannig varð afar lítil raunbreyting í dagvöruverslun í síðasta mánuði en hins vegar vekur athygli hve fataverslun dróst mikið saman. Fataverslun hefur reyndar minnkað töluvert undanfarna mánuði sem er ekki í takt við þróun á annarri tegund sérvöruverslunar. Það sem af er þessu ári er sala á fötum að raunvirði 8,7% minni en á sama tímabili í fyrra. Fatakaupmenn nefna ýmsar ástæður fyrir þessu, meðal annars meiri nýtni á fötum, merkjavörur seljist minna en áður og að landsmenn kaupi föt í auknum mæli erlendis. Ein ástæða þess að verslun var almennt minni í október síðastliðnum heldur en í sama mánuði í fyrra var að á þessu ári voru fjórir föstudagar í október en í fyrra voru þeir fimm. Þó veltutölur hafi verið leiðréttar með tilliti til þessa dagamismunar varð samt einhver samdráttur í öllum tegundum verslunar nema í húsgagnaverslun, þar sem veltan jókst. Athyglisvert er að verslun með rúm hefur aukist um 17,7% á síðustu þremur mánuðum miðað við sama tímabil í fyrra að raunvirði. Þrátt fyrir samdrátt í verslun í október virðist sem einkaneysla haldi áfram að aukast þegar horft er til lengra tímabils. Þannig nam raunhækkun á innlendri greiðslukortanotkun frá janúar til september síðastliðinn 4,3%. Velta á greiðslukortum Íslendinga erlendis jókst mun meira en kortavelta útlendinga hér á landi fyrstu níu mánuði ársins. Greiðslukortanotkun Íslendinga erlendis var 22% meiri en á sama tíma í fyrra á meðan kortanotkun útlendinga hér á landi jókst um 14,6%.
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira