Héraðsdómur styrkir forsendur Icesave-samninganna 2. apríl 2011 06:37
Niðurstaða héraðsdóms um heildsöluinnlán styrkir forsendur Icesave-samninganna og dregur úr réttaróvissu um stöðu þeirra sem gera kröfu til að njóta forgangs við úthlutun úr búi bankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samninganefnd Íslands í Icesave málinu en hún hefur verið birt á vefsíðu stjórnarráðsins. "Samkvæmt úrskurðum sem gengu í héraðsdómi Reykjavíkur í dag var því slegið föstu að ákvæði neyðarlaganna um forgangsröð innstæðueigenda brjóti ekki gegn eignarréttarvernd eða jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Þessi niðurstaða varðar forsendu Icesave-samninganna og skiptir sköpum fyrir að bú bankans standi í raun sjálft undir stærstum hluta af greiðslu skuldbindinga vegna Icesave reikninganna," segir í tilkynningunni. "Jafnframt var þar staðfest að svokölluð heildsöluinnlán teljist innstæður í skilningi laga nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, og njóti þar með forgangs við slitameðferð Landsbanka Íslands. Þessi niðurstaða er í samræmi við afstöðu slitastjórnar Landsbankans og þar með þær forsendur sem samninganefnd Íslands hefur lagt sínum áætlunum til grundvallar. Niðurstaða dómsins styrkir þannig forsendur Icesave-samninganna og dregur úr réttaróvissu um stöðu þeirra sem gera kröfu til að njóta forgangs við úthlutun úr búi bankans. Af því leiðir að slitastjórn getur að öllum líkindum hraðað úthlutun úr búi bankans frá því sem samninganefndin hefur gert ráð fyrir. Við það dregur markvert úr kostnaði ríkisins af vaxtagreiðslum af höfuðstól endurgreiðslufjárhæðarinnar og er það mat samninganefndarinnar að áhrif flýtingar útgreiðslna lækki enn hreinan kostnað af samningunum. Niðurstaða héraðsdóms Reykjavíkur gefur því sterkar vísbendingar um að þær meginforsendur sem samninganefndin hefur byggt mat sitt á samningunum á séu í senn traustar og varfærnislegar."
Icesave Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira