Viðskipti innlent

Gjaldeyrisveltan nam 5,5 milljörðum á millibankamarkaði í apríl

Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í apríl síðastliðnum nam rúmlega 5.5 milljörðum króna sem er tæplega 1.8 milljarða króna meiri velta en í mars.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að af heildarveltunni námu gjaldeyriskaup Seðlabankans tæpum milljarði kr eða 17,6% af heildarveltu mánaðarins.

Gengi evrunnar hækkaði um 1,1% gagnvart krónunni í mánuðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×