Ljósleiðaravæðingin vekur athygli ytra Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 4. maí 2011 04:00 Framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur segir marga í útlöndum horfa til þess hvernig ljósleiðaranetið hafi verið byggt upp hér. Fréttablaðið/Stefán
Mikill áhugi er á uppbyggingu ljósleiðaranets Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélags Orkuveitunnar, í öðrum löndum. „Margir vilja heyra um ljósleiðaravæðinguna í Reykjavík. Ástæðan er sú að þótt við séum fá og með smærra umfang en víða annars staðar þá höfum við unnið eftir plani sem gengur upp,“ segir Birgir Rafn Þráinsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitunnar. Hann hélt erindi á stærstu ráðstefnu í heimi um ljósleiðaravæðingu í Mílanó á Ítalíu í febrúar og endurtekur leikinn á ráðstefnu póst- og fjarskiptastofnunar Grikklands í næsta mánuði. Birgir segir horft til ljósleiðaravæðingar í Evrópu á næstu árum. Hún sé komin þar mislangt á veg. Þar eru fremst í flokki auk Íslands Noregur, Svíþjóð og Holland. Lengst er ljósleiðaravæðing heimilanna komin í Kóreu og Japan. Gagnagveitan hefur tengt um 2/3 hluta af heimilum í Reykjavík, auk allra heimila á Akranesi, Seltjarnarnesi, Hellu og Hvolsvelli. Þetta jafngildir 58 prósentum þeirra 65 þúsund heimila sem stefnt er að verði tengd ljósleiðaranetinu í árslok 2014. Viðskiptavinir eru nú tólf þúsund talsins og bætast um fjögur hundruð við í hverjum mánuði. Birgir segir íbúa höfuðborgarsvæðisins taka vel í það þegar spurt sé hvort þeir hafi áhuga á að fá ljósleiðaratengingu í hverfi sitt. Flestir taki á endanum allan pakkann, tengingu fyrir síma, sjónvarp og net. „Það sýnir að almenningur gerir sér grein fyrir að því ljósleiðaranetið sé framtíðarlausn fjarskipta fyrir heimiln,” segir hann. Ljósleiðaranet Gagnaveitunnar er farið að skila umtalsverðum tekjum. Þær námu einum milljarði króna í fyrra samanborið við undir átta hundruð milljónir í hittifyrra. Eignir nema tíu milljörðum króna en skuldir 7,2 milljörðum. Þar af eru 6,2 milljarðar gagnvart móðurfélaginu, Orkuveitu Reykjavíkur. Lánið er á gjalddaga á næsta ári. Birgir segist vongóður um að þetta eina lán verði framlengt. Önnur verði hins vegar endurfjármögnuð á almennum lánsfjármarkaði.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjá meira