Hundruð milljóna í arð þrátt fyrir lakan rekstur Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. júlí 2011 18:35
Eigendur Olís greiddu sér sex hundruð tuttugu og fimm milljónir í arð vegna ársins 2008 þótt félagið hafi skilað tapi upp á sex milljarða. Eigið fé Olís er einn komma sjö milljarðar króna en fyrirtækið skuldar alls sextán milljarða. Eins og fréttastofa greindi frá í vikunni eiga eigendur Olís, félagið FAD 1830 ehf. í stífum samningaviðræðum við Landsbankann vegna skuldavanda félagsins. FAD 1830 ehf. móðurfélag Olís hefur ekki skilað ársreikningi frá árinu 2007, en Olís skilaði ársreikningum fyrir árið 2008 og 2009 í vikunni og þar kemur margt athyglisvert í ljós. Á hrunárinu 2008 greiddi móðurfélag Olís sér 625 milljónir króna í arð vegna rekstrar ársins á undan en á hrunárinu 2008, árinu sem arðurinn var greiddur út, tapaði Olís tæplega sex milljörðum króna. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var 625 milljóna króna arðurinn notaður til að greiða skuldir FAD 1830 við Landsbankann. Samkvæmt ársreikningnum voru sex æðstu stjórnendur Olís með samtals 274 milljónir króna í laun á því ári, eða fjörutíu og fimm milljónir króna á mann. Árið 2009 tapaði Olís 430 milljónum króna. Heildarskuldir í lok árs námu rúmlega 16 milljörðum en eignir námu 17,9 milljörðum króna, en félagið var með jákvætt eigið fé upp 1,7 milljarða króna. Nýrri fjárhagsupplýsingar liggja ekki fyrir - en Olís hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2010. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar hafa eigendur Olís ekki tekið sér arð út úr Olís eftir bankahrunið.
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira