Viðskipti innlent

Þjóðverjar stofna fyrirtæki á Íslandi

Þýski flutningarisinn DB Schenker ætlar bráðlega að hefja hér vöruflutningamiðlun á láði og legi í samkeppni við dótturfyrirtæki Eimskips og Samskipa. Skrifstofan hér mun sjá um flutninga með ferskt sjávarfang um allan heim.

"Ætlunin er að skrifstofan á Íslandi verði hluti af teyminu sem vinnur með flutningsmiðlun á frystum kjötvörum og sjávarfangi um allan heim," segir Helgi Ingólfsson, framkvæmdastjóri flug- og sjóflutningasviðs þýska vöruflutningamiðlunarinnar DB Schenker á Norðurlöndunum.

DB Schenker stofnaði dótturfyrirtæki hér á landi í maí og setti skrifstofu á laggirnar í Ármúlanum í Reykjavík fyrir mánuði. Fjórir vinna á skrifstofunni en stefnt er að því að þeir verði á bilinu átta til tíu þegar fram líða stundir. Eimskip var áður umboðsaðilar fyrir flutningamiðlun DB Schenker.

DB Schenker er í eigu þýsku járnbrautanna og þar með í eigu þýska ríkisins. Fyrirtækið varð til upp úr uppstokkun á dótturfélögum járnbrautanna undir lok árs 2007.

DB Schenker er með umsvifamestu flutningafyrirtækjum í heimi en er að ýta úr vör flutningamiðlun sem sérhæfir sig í flutningum á ferskum kjötvörum og sjávarfangi heimshorna á milli, svo sem frá Síle og Kanada. Nú þegar flytur fyrirtækið mikið magn af ferskum laxi frá Noregi.

Ekki liggur fyrir hvenær flutningar á vegum fyrirtækisins hefjast hér bæði á lofti sem láði en búist er við að það gerist fljótlega. Helstu samkeppnisaðilar fyrirtækisins eru TVG Zimsen, dótturfyrirtæki Eimskips, og Jónar Transport, fyrirtæki Samskipa. Miðlun DB Schenker felst í því að fyrirtækið finnur hagstæðasta flutningskostinn hverju sinni hvort heldur er á lofti eða láði. Í einstaka tilvikum leigir fyrirtækið flugvélar fyrir flutningana. Þá hefur fyrirtækið tekið að sér sérstaka flutninga, svo sem fyrir verktaka víða um heim.

"Við erum ekkert að flýta okkur, ætlum að ná um tíu prósenta hlutdeild á markaðnum hér innan tveggja til þriggja ára," segir Helgi. -jonab@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×