Drekaútboð átti að hefjast í dag 1. ágúst 2011 12:15
Ekkert verður af því að annað olíuleitarútboð Íslendinga á Drekasvæðinu hefjist í dag, eins og búið var að undirbúa í hartnær tvö ár. Ástæðan er sú, eins og áður hefur komið fram í fréttum, að nauðsynlegar lagabreytingar dagaði uppi á Alþingi á lokadögum þingsins fyrr í sumar. Íslensk stjórnvöld höfðu snemma árs 2010 tilkynnt formlega að útboðið myndi hefjast 1. ágúst 2011. Starfsmenn Orkustofnunar hófu undirbúning útboðsins miðað við þessa tímasetningu þó mun fyrr, eða haustið 2009, þegar fyrir lá sú niðurstaða fyrsta útboðsins að tvö olíufélög, sem sóttu um leyfi, hættu bæði við. Vonir voru bundnar við að áhuginn væri nú orðinn meiri. Þannig sóttu átta olíufélög kynningarfund Orkustofnunar í Stafangri í júníbyrjun, þeirra á meðal Exxon Mobil, Conoco Philips, Statoil og Total. Þegar ljóst varð skömmu síðar að útboðið myndi frestast kvaðst orkumálastjóri sleginn enda taldi hann að lag væri til að bjóða út olíuleit. Málinu hefur verið lýst sem klúðri Alþingis en lagafrumvörpin höfðu áður verið afgreidd úr viðkomandi þingnefndum án ágreinings. Stjórnarandstöðuþingmaður sagði þetta hafa gerst vegna ömurlegrar verkstjórnar á störfum ríkisstjórnar og Alþingis. Nú er vonast til að unnt verði að hefja útboðið í október í haust og að tilboð verði opnuð í apríl 2012. Það er þó háð því að Alþingi nái að samþykkja lagabreytingarnar á haustþingi í næsta mánuði.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira