Íslandsbanki segir upp 42 starfsmönnum 29. nóvember 2011 13:12
Í dag réðst Íslandsbanki í hagræðingaraðgerðir í kjölfar sameiningar Íslandsbanka og Byrs og var 42 starfsmönnum sagt upp störfum, 26 konum og 16 körlum, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. „Aðgerðirnar eru hluti af almennri hagræðingu í íslenska fjármálakerfinu og eru mikilvægar í ljósi aukins eftirlitskostnaðar og vaxandi opinberrar gjaldtöku á fjármálafyrirtæki,“ segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. Tilkynning frá Íslandsbanka vegna þessara uppsagna er eftirfarandi: „Reynt hefur verið að takmarka uppsagnir eins og hægt er en í dag hefur 42 starfsmönnum hins sameinaða banka verið sagt upp störfum, þar af eru 16 karlar og 26 konur en þess má geta að um 66,5% starfsmanna bankans eru konur. Að auki hefur verið gengið frá starfslokum við 21 starfsmann þar sem hluti fer á eftirlaun og aðrir hætta að eigin ósk. Þá verða tímabundnir samningar ekki endurnýjaðir. Alls hætta því 63 starfsmenn nú um mánaðamótin. Þar með lýkur hagræðingaraðgerðum í höfuðstöðvum sameinaðs banka. Íslandsbanki hefur samið við Hagvang um ráðgjöf og aðstoð við starfsmenn við atvinnuleit auk þess sem boðið verður upp á sálfræðiaðstoð fyrir þá sem þess óska. Bankinn leggur áherslu á að halda starfsmönnum, trúnaðarmönnum, starfsmannafélagi og Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) upplýstum um aðgerðirnar og mun kappkosta að standa vel að málum. Það er ljóst að um sársaukafullar aðgerðir er að ræða en þær eru engu að síður nauðsynlegar til að tryggja að kostnaður bankans sé í samræmi við umsvif, arðsemiskröfur, og starfsumhverfi á íslenskum fjármálamarkaði.“
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Sjá meira