Kaup Búvalla í Högum eru viðskipti ársins 29. desember 2011 10:30 Viðskiptafélagarnir Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson hættu upphaflega við að kaupa í Högum vegna þess að þeim fannst hluturinn of stór. Þegar Sigþór Jónsson, forstöðumaður sérhæfðra viðskipta hjá Stefni, leitaði til þeirra og vildi fá þá sem hluta af Búvallahópnum horfði málið öðruvísi við. fréttablaðið/Stefán
Viðskipti ársins að mati dómnefndar Markaðarins eru kaup Búvalla á 44% hlut í Högum. Niðurstaðan var mjög afgerandi og viðskiptin fengu langflest atkvæði. Í febrúar 2011 var tilkynnt að Arion banki hefði selt 34% hlut í smásölurisanum Högum til hóps sem kallaðist Búvellir slhf. Það var Stefnir, sjóðstýringarfyrirtæki í eigu Arion banka, sem kom hópnum saman til að kaupa hlutinn af bankanum. Sigþór Jónsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni, var lykilmaður í því ferli. Eigendur Búvalla voru Hagamelur ehf. (í eigu Árna Haukssonar, Hallbjörns Karlssonar, Sigurbjörns Þorkelssonar og TM), nokkrir lífeyrissjóðir, tveir fagfjárfestasjóðir sem lúta stjórn Stefnis, Miranda ehf. (í eigu Berglindar Jónsdóttur) og Draupnir fjárfestingafélag (í eigu Jóns Diðriks Jónssonar). Árni og Hallbjörn settust í stjórn Haga eftir kaupin. Árni er stjórnarformaður Haga. Hópurinn greiddi 10 krónur á hlut og fékk auk þess forkaupsrétt á 10% hlut til viðbótar á genginu 11. Þann forkaupsrétt nýtti hópurinn sér í nóvember. Samtals greiddi hann um 5,4 milljarða króna fyrir alls 44% hlut. Í kjölfarið klufu lífeyrissjóðirnir sig út úr Búvöllum og leystu til sín rúmlega helming af eign félagsins í Högum og halda nú á þeim hlutum í eigin nafni. Eftir þetta áttu þeir fjórir aðilar sem áfram standa að Búvöllum 20,9% hlut í Högum og eru stærsti einstaki eigandi félagsins. Um helmingur þess hlutar, 10,5%, er í eigu Hagamels. Í lok árs var síðan tilkynnt að Hagar yrðu skráðir á markað í desember. Arion banki myndi þá selja allt að 30% af hlut sínum í félaginu, en um fyrstu nýskráningu í kauphöll eftir hrun var að ræða. Bréfin áttu að seljast á 11-13,5 krónur á hlut. Endanlegt verð átti að ráðast af eftirspurn. Skemmst er frá því að segja að áttföld eftirspurn var eftir hlutabréfunum og 95% tilboðanna voru gerð á genginu 13,5. Miðað við það gengi var hlutur Búvallahópsins þegar orðinn 7,2 milljarða króna virði. Hann hafði því grætt um 1,8 milljarða króna áður en viðskipti með bréf í Högum hófust í kauphöll. Þau hófust síðan föstudaginn 16. desember. Í lok fyrsta viðskiptadags var gengi bréfanna komið í 15,95 krónur á hlut. Þau höfðu því hækkað um 18,1% frá því að útboðið fór fram og um tæp 60% frá því að Búvellir keyptu fyrst í Högum.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira