Viðskipti innlent

Vísitala framleiðsluverðs hækkar áfram

Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2011 var 213,5 stig  og hækkaði um 1,6% frá mars 2011. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagastofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 247,4 stig, sem er hækkun um 1,7% (vísitöluáhrif 0,6%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 258,8 stig, lækkaði um 0,5% (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 8,2% (1,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,9% (0,2%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,8% (1,4%).

Miðað við apríl 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,0% en verðvísitala sjávarafurða um 8,4%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 4,3% en matvælaverð hefur hækkað um 4,7%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×