Íslenskur hugbúnaður fær alþjóðleg verðlaun 30. maí 2011 13:18
Íslenskur hugbúnaður, City Direct frá ICEconsult, hafnaði í öðru sæti í alþjóðlegri samkeppni, „Future Internet Summit Award“, sem haldin er í tengslum við ráðstefnuna „European Summit on the Future Internet“. Markmið hennar er leita uppi nýjar lausnir sem eru líklegar til að hafa afgerandi áhrif á mótun notkunar á internetinu í framtíðinni á ákveðnum sviðum. Í tilkynningu segir að City Direct sé lausn fyrir sveitarfélög til að gefa íbúum kost á að hafa áhrif á ákvarðanatöku um framkvæmd valdra verkefna með beinum hætti. Margir þekkja verkefnið 1, 2 og Reykjavík, sem notaði fyrri kynslóð þessarar lausnar og gerði íbúum kleift að skrá ábendingar til borgarinnar. City Direct tekur nú næsta skref og gefur íbúum tækifæri til að velja á milli verkefna. City Direct byggir á MainManager, sem hefur verið þróað alfarið hjá ICEconsult, og má þannig samnýta þau öflugu verkfæri sem þar eru svo sem áætlanagerð og verkefnastjórnun auk tenginga við önnur kerfi eins og t.d. landupplýsingakerfi. Verðlaun verða afhent á ráðstefnunni sem haldin verður þann 6. júní nk. í Lúxemborg en þar mun Gunnlaugur Hjartarson framkvæmdastjóri ICEconsult kynna lausnina og veita verðlaununum viðtöku.
Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira